Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Tilkynning um breytta stjórnsýsluframkvæmd - sérfræðileyfi í ljósmóðurfræði

4. mars 2026

Embætti landlæknis tilkynnir hér með um breytta stjórnsýsluframkvæmd við veitingu sérfræðileyfa í ljósmóðurfræði.

Fjallað er um skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfis ljósmæðra í 6. gr. reglugerðar nr. 1089/2012 um menntun, réttindi og skyldur ljósmæðra og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi. Samkvæmt því ákvæði skal sérfræðinám umsækjanda vera skilgreint innan þess sérsviðs sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur til. Þá skal umsækjandi hafa lokið meistara- eða doktorsprófi í ljósmóðurfræði frá viðurkenndum háskóla eða hafa sambærilega menntun.

Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis ljósmæðra er samkvæmt framangreindri reglugerð að umsækjandi hafi lokið kandídatsnámi í ljósmóðurfræði frá hjúkrunarfræðideild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Árið 2019 var gerð breyting á námstilhögun í ljósmóðurfræði þannig að kandídatsnám í ljósmóðurfræði var lagt niður og þess í stað varð meistaranám í ljósmóðurfræði það nám sem veitir umsækjendum rétt til starfsleyfis ljósmæðra. Reglugerð nr. 1089/2012 hefur ekki verið uppfærð til samræmis við breytta námstilhögun en vinna við endurskoðun reglugerðarinnar er þó hafin.

Ljósmæður, sem luku kandídatsnámi, fyrir ofangreinda breytingu á námi í ljósmóðurfræði, sem hafa bætt við það nám sitt tilskyldum einingum til að ljúka meistaranámi í ljósmóðurfræði, hafa fram til þessa verið taldar uppfylla framangreind skilyrði 6. gr. reglugerðar nr. 1089/2012 fyrir útgáfu sérfræðileyfis í ljósmóðurfræði er lúta að námi.

Við gagngera skoðun á skilyrðum sérfræðileyfa, m.a. í tengslum við endurskoðun ofangreindrar reglugerðar, sem og með vísan til nýlegra úrskurða heilbrigðisráðuneytisins hefur embætti landlæknis komist að þeirri niðurstöðu að meistaranám í ljósmóðurfræði, sem nú er það nám sem veitir rétt til starfsleyfis ljósmóður, geti ekki talist uppfylla það skilyrði 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar að teljast skilgreint sérfræðinám innan sérsviðs ljósmóðurfræði, þrátt fyrir að ljósmóðir hafi bætt við kandídatsnám sitt tilskyldum einingum til að ljúka meistaragráðunni.

Með vísan til framangreinds tilkynnir embætti landlæknis að hér eftir verður gerð sú krafa að umsækjandi hafi bætt við sig fullu meistara- eða doktorsnámi, eða sambærilegu námi, á sérsviði ljósmóðurfræði, og að það nám sem umsækjandi byggir umsókn sína um sérfræðileyfi á, hafi hafist að loknu því námi sem veitti viðkomandi rétt til starfsleyfis. Eftir sem áður þurfa önnur skilyrði 6. gr. fyrir veitingu sérfræðileyfis jafnframt að vera uppfyllt.

Samkvæmt framangreindri reglugerð þarf ljósmóðir að hafa starfað á því sérsviði sem umsókn hennar um sérfræðileyfi tekur til í tvö ár í fullu starfi að loknu sérfræðinámi. Til að veita þeim ljósmæðrum, sem þegar hafa hafið meistaranám í ljósmóðurfræði, sem viðbót við kandídatspróf í ljósmóðurfræði, hæfilegt svigrúm og tækifæri til að fá útgefið sérfræðileyfi á grundvelli námsins, verða umsóknir þeirra um sérfræðileyfi afgreiddar í samræmi við eldri framkvæmd fram til 31. desember 2029.

Starfsleyfateymi