Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Talnabrunnur - 3. tölublað 2026

16. apríl 2026

Nýtt tölublað Talnabrunns, fréttabréfs landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, hefur verið gefið út.

Í nýjum Talnabrunni koma fram jákvæð teikn um þróun í notkun lyfja með ávana‑ og fíknihættu.

Úttektin sýnir að lyfjanotkun hefur dregist saman í mörgum lyfjaflokkum, einkum hjá elsta aldurshópnum. Þróunin er í samræmi við markmið Lyf án skaða átaksins, þar sem áhersla er lögð á aukið lyfjaöryggi, varfærni í ávísunum og betri yfirsýn yfir lyfjameðferð með miðlægu lyfjakorti.

Úttektin leiðir einnig í ljós mikinn kynjamun í lyfjanotkun. Konur eru meirihluti notenda í flestum lyfjaflokkum og er munurinn sérstaklega áberandi í notkun róandi lyfja og svefnlyfja, þar sem nærri tvöfalt fleiri konur en karlar fá slíkum lyfjum ávísað. Þá eru konur nú orðnar meirihluti notenda örvandi ADHD-lyfja meðal fullorðinna, á meðan drengir eru enn meirihluti notenda yngri en 18 ára, þrátt fyrir fækkun frá fyrra ári.

Að lokum kemur fram að lyfjanotkun er meiri á Norðurlandi en í sumum öðrum landshlutum, á meðan verulegur samdráttur mælist á Vestfjörðum, sem vekur upp spurningar um mismunandi heilbrigðisþarfir, aðgengi að þjónustu og ávísunarvenjur eftir landsvæðum.

Greinarhöfundur er Védís Helga Eiríksdóttir.

Frekari upplýsingar
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is