Staðan á matvælarannsókn vegna E. coli hópsýkingar hjá börnum
30. október 2024
Í síðustu viku kom upp hópsýking hjá börnum á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík af völdum E. coli bakteríu af tegund sem kallast STEC. Rannsókn á orsök og uppruna sýkingarinnar hófst sama dag og greining var gerð.
Leikskólanum var lokað næsta dag. Líklegast er um matarborið smit að ræða. Fjölmörg matvælasýni eru til rannsóknar hjá Matís, en greiningar á STEC í matvælum eru vandasamar og tímafrekar. Niðurstöður verða birtar með fréttatilkynningu á vefjum sóttvarnalæknis, Matvælastofnunar og heilbrigðiseftirlitsins þegar þær liggja fyrir.
Rannsóknir á matarbornum hópsýkingum er í höndum stýrihóps sem er í þessu tilviki skipaður af sóttvarnalækni, Matvælastofnun, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, sýkla- og veirufræðideild Landspítala, Matís, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Barnaspítala Hringsins.
Eftir ítarlega upplýsingaöflun fulltrúa sóttvarnalæknis og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hjá foreldrum barnanna beinist athyglin að fimmtudeginum 17. október, en þann dag voru í leikskólanum öll þau börn sem veiktust fyrstu dagana. Líklegast er um matarborið smit að ræða þar sem veikindi barnanna hófust á svipuðum tíma og dreifast yfir allar deildir skólans. Af sömu ástæðu er ólíklegra að smitið sé upprunalega frá umhverfi eða barna á milli. Þó er ekki hægt að útiloka þær smitleiðir eftir að veikindi byrjuðu og áður en grunur kom upp um hópsýkingu og leikskólanum var lokað.
Þann 17. október var hafragrautur í boði um morguninn, hakksósa eða linsubaunaréttur (grænmetisréttur) og spagettí í hádegismat og melónur í ávaxtatíma. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fer með rannsókn á vettvangi og hefur tekið fjölmörg matvælasýni til rannsóknar, af matvælum sem var boðið uppá þennan dag. Jafnframt hafa heilbrigðisfulltrúar farið í eftirlit í leikskólann, farið yfir verklag, metið aðstæður og farið fram á úrbætur eftir tilefni. Eftir að hópsýkingin kom upp hefur leikskólinn verið þrifinn hátt og lágt, auk þess sem leikföng og annar búnaður hefur verið sótthreinsaður. Leikskólinn er enn lokaður og verður ákvörðun um opnun tekin af rekstraraðila í samráði við stýrihóp. Sóttvarnalæknir mun gefa út leiðbeiningar varðandi hvenær börnin geta mætt aftur í skólann.
Um E. coli og greiningu á STEC
E. coli bakteríur eru hluti af náttúrulegri þarmaflóru manna og dýra og geta borist í vatn, kjöt, grænmeti og önnur matvæli við framleiðslu þeirra. Mismunandi tegundir E. coli eru til. Shigatoxin myndandi E. coli (STEC) bera gen sem mynda eiturefni sem valda veikindunum (meinvirknigen). Stofnar þeirra geta þó verið mis-sjúkdómsvaldandi.
Það getur verið erfitt að finna og rækta upp STEC stofna í matvælum. Fyrst er gerð skimun á meinvirknigenum og ef þau greinast er farið í að rækta upp E. coli stofna. Þar sem fjöldi mismunandi E. coli stofna er oft að finna í hverju sýni getur reynst vandasamt að hitta á þann stofn sem ber meinvirknigenin og oft þarf að endurtaka rannsóknirnar. Stundum tekst ekki að finna meinvaldinn.
Matvælastofnun greindi frá skimun á tilvist sjúkdómsvaldandi baktería í íslensku kjöti á markaði hérlendis árið 2018. Þar kom fram að STEC meinvirknigen fundust í tæplega 30% sýna af lambakjöti og 11,5% sýna af nautgripakjöti. Sambærilegar rannsóknir hafa ekki verið gerðar á grænmeti, ávöxtum eða öðrum matvælum hér á landi.
Sóttvarnalæknir
Matvælastofnun (MAST)
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur