Ójöfnuður í farsæld barna: Líðan, tengsl og öryggi eftir mati á fjárhagslegri stöðu
26. mars 2025
Nýtt tölublað Talnabrunns, fréttabréfs landlæknis um heilbrigðisupplýsingar hefur verið gefið út. Greinarhöfundar eru Sigrún Daníelsdóttir og Andrea G. Dofradóttir

Í nýjum Talnabrunni embættis landlæknis er fjallað um líðan, öryggi og félagstengsl barna á Íslandi og samband þessara þátta við hvernig þau meta fjárhagslega stöðu fjölskyldu sinnar. Gögn frá Íslensku æskulýðsrannsókninni voru nýtt til að fá yfirlit yfir þessa þætti í því skyni að skoða hvort og þá hvar megi greina ójöfnuð í heilsu og vellíðan barna. Niðurstöðurnar voru kynntar á málþingi sem embætti landlæknis hélt í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Endurmenntun Háskóla Íslands í tilefni af Alþjóðlega hamingjudeginum 20. mars síðastliðin. Upptaka af málþinginu er aðgengileg á vef.
Mikill munur meðal barna eftir mati þeirra á fjárhagsstöðu
Almennt er staða barna í 6.-10. bekk grunnskóla árið 2024 góð á flestum sviðum. Flest börn meta lífsánægju sína mikla, líður vel í skólanum og eiga góð tengsl við fjölskyldu sína, kennara og bekkjarfélaga. Aftur á móti má greina mikinn mun á líðan, tengslum og öryggi barna eftir því hvernig þau meta fjárhagslega stöðu fjölskyldu sinnar.
Börn sem meta fjárhagsstöðu fjölskyldu sinnar slæma eru mun verr stödd en börn sem meta fjárhagsstöðuna góða á öllum mælingum sem skoðaðar voru. Þau eru líklegri til að upplifa depurð og kvíða nær daglega, greina frá lítilli lífsánægju, líka illa í skólanum, upplifa sig einmana og utangarðs þar, hafa lent í slagsmálum, orðið fyrir eða beitt einelti og orðið fyrir ofbeldi af hálfu foreldris eða annars fullorðins á heimili sínu. Þau greina mun síður frá því að fá þann tilfinningalega stuðning og hjálp sem þau þurfa frá fjölskyldu sinni, upplifa bekkjarfélaga sína síður vingjarnlega, treysta kennurum sínum síður og telja þeim síður vera annt um sig sem einstaklinga.
Ójöfnuður í farsæld barna
Ójöfnuður meðal barna hefur alvarleg áhrif ekki aðeins á þá einstaklinga sem eiga í hlut heldur á þróun samfélagsins til framtíðar. Í skýrslu embættis landlæknis frá árinu 2021 kemur fram að einstaklingar sem áttu styttri skólagöngu að baki eða erfiðara með að ná endum saman bjuggu almennt við verri heilsu og lifnaðarhætti en þeir sem áttu að baki lengri skólagöngu eða bjuggu við betri efnahag. Í skýrslunni er undirstrikað mikilvægi þess að líta á ójöfnuð í heilsu og vellíðan í tengslum við lífsskilyrði í samfélaginu almennt. Í Talnabrunni embættis landlæknis um líðan fullorðinna árið 2023 kom jafnframt fram að þeim fari fjölgandi sem eiga erfitt með að ná endum saman. Það er mikið áhyggjuefni þar sem streita, líðan og staða foreldra hefur áhrif á börn.
Rík ástæða er til þess að fylgjast betur með líðan og högum barna eftir félags- og efnahagsstöðu og gera betri ráðstafanir til að mæta þeim sem standa höllum fæti, þar á meðal í skólakerfinu. Nauðsynlegt er að hlúa að barnafjölskyldum og hafa í huga að velferð foreldra hefur áhrif á farsæld barna. Mikilvægt er að stuðla að góðum uppeldisskilyrðum fyrir öll börn með markvissum aðgerðum.
Þau gögn sem rýnd eru í þessum Talnabrunni benda til þess að tækifæri barna til að eiga heilbrigt og gott líf eru ójöfn allt frá barnæsku. Ef ekkert er að gert mun sá aðstöðumunur að líkindum fara vaxandi yfir æviskeiðið og þar með auka enn á heilsufarslegan ójöfnuð. Jöfn tækifæri og góð uppeldisskilyrði barna eru lykillinn að farsælu samfélagi til lengri tíma og því mikilvægt að standa vörð um vellíðan, heilsu og farsæld allra barna og ungmenna – og skilja engin eftir.
Frekari upplýsingar
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is