Öndunarfærasýkingar. Vikur 40-41 árið 2023
19. október 2023
Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra á haustmánuðum og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.
Töluvert er um öndunarfærasýkingar í samfélaginu og niðurstöður frá öndunarfærasýnum sýna að algengustu orsakirnar eru rhinoveira og COVID-19.
Fjöldi COVID-19 greininga hefur lækkað lítillega undanfarnar fjórar vikur eftir aukningu fyrr í haust. Greiningum á rhinoveiru hefur einnig fækkað sem og hlutfall jákvæðra öndunarfærasýna á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Enn er lítið um staðfesta inflúensu. Talsvert fleiri liggja inni á sjúkrahúsi með greiningar af völdum öndunarfæraveira nú en á sama tíma síðastliðið haust.
Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma í vikum 40 og 41 ársins 2023.
Sóttvarnalæknir