Öndunarfærasýkingar. Vikur 15 og 16 árið 2023
27. apríl 2023
Öndunarfærasýkingar eru heilt yfir á niðurleið eins og búast má við á vorin. Einnig hefur dregið úr innlögnum á Landspítala vegna öndunarfærasýkinga. Faraldur öndunarveirasýkinga virðist genginn yfir að sinni.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5huca96by04YEPUvzm6t8n/23194809e1c7620fee992e36f62cf106/Covid_og_infl__ensa_3.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Covid og inflúensa 3](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5huca96by04YEPUvzm6t8n/23194809e1c7620fee992e36f62cf106/Covid_og_infl__ensa_3.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Stöku tilfelli af staðfestri inflúensu greinist og fjöldi COVID-19 greininga hefur fækkað mikið undanfarnar vikur. Skarlatssótt er enn vel yfir meðaltali undanfarinna ára þó fjöldi greininga hafi minnkað töluvert samanborið við fyrr í vetur. Klínískum greiningum á hálsbólgu fer fækkandi. Þetta verður því, að öllu óbreyttu, síðasta útgáfa samantektar um öndunarfærasýkingar á þessu „flensutímabili“. Við biðjum alla áfram að muna eftir og sinna persónulegum sóttvörnum og huga að bólusetningum þegar það á við.
Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma í 15. og 16. viku ársins 2023.
Sóttvarnalæknir