Öndunarfærasýkingar. Vika 9 árið 2023
9. mars 2023
Færri greindust með staðfesta inflúensu í viku 9 samanborið við undangengnar þrjár vikur. Fjöldi greininga inflúensulíkra einkenna eru sambærilegar milli vikna.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5huca96by04YEPUvzm6t8n/23194809e1c7620fee992e36f62cf106/Covid_og_infl__ensa_3.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Covid og inflúensa 3](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5huca96by04YEPUvzm6t8n/23194809e1c7620fee992e36f62cf106/Covid_og_infl__ensa_3.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Færri greindust með COVID-19 í viku 9 samanborið við undangengnar fimm vikur. Sýnatökum vegna COVID-19 hefur fækkað. Færri greindust með skarlatssótt, en fleiri með hálsbólgu. Innlögnum á Landspítala vegna COVID-19, inflúensu og RSV hefur fækkað.
Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma í níundu viku ársins 2023.
Sóttvarnalæknir