Fara beint í efnið

Öndunarfærasýkingar. Vika 6 árið 2024

15. febrúar 2024

Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.

Öndunarfærasýkingar. Nýtt tölublað

Fjöldi innlagðra einstaklinga með öndunar­færaveirusýkingu á Landspítala í viku hverri hefur fækkað frá ára­mótum. Fjöldi greininga á COVID-19 og RSV hefur einnig farið fækkandi frá áramótum en fjöldi inflúensu­greininga jókst aðeins á ný í síðustu viku.

Langflest greind tilfelli af inflúensu þennan veturinn hafa, enn sem komið er, verið af inflúensustofni A. Bæði mislingar og hettusótt hafa borist til landsins nýverið. Ekki er útséð um útbreiðslu frá þessum tilfellum.

Bólusetningaátak er yfirstandandi hjá heilsugæslunni til að draga úr áhrifum beggja atvika, fyrst og fremst á höfuðborgarsvæðinu.

Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma í sjöttu viku ársins 2024.

Sóttvarnalæknir