Öndunarfærasýkingar - Vika 51, 52 (2025) og vika 1 (2026)
8. janúar 2026
Árlegur inflúensufaraldur er í gangi. Fjöldi greindra tilfella hefur verið mikill í vetur en hefur farið lækkandi undanfarið.
Fáir eru nú innlagðir á Landspítala með eða vegna inflúensu. Inflúensan var fyrr á ferðinni en undanfarna vetur en ekki er hægt að vita enn hvort er náð eða hversu lengi faraldur heldur áfram. (sjá mynd 1 og mælaborð).
Lítið greinist af COVID-19 og ekki mikið af RS-veiru.

Mynd 1: Fjöldi greininga inflúensu síðustu vikur (rauða lína) samanborið við undanfarna vetur eftir vikum ársins (sjá mælaborð sóttvarnalæknis)
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir vikur 51−52 2025 og viku 1 2026 (15. desember 2025–4. janúar 2026). Fjöldi greininga byggir á rannsóknarniðurstöðum en flest sýni koma frá spítölum en færri frá heilsugæslunni. Færri sýni voru tekin til rannsókna vegna öndunarfæraveira yfir jól og áramót samanborið við vikurnar fyrir jól.
Inflúensa
Í viku 51 greindust 78 tilfelli inflúensu, allt inflúensutegund A, flest eða 48 af tegund A(H3), 21 af tegund A(pdm09) og níu með óþekkta undirtegund. Einstaklingar sem greindust voru í öllum aldurshópum: 34 einstaklingar 65 ára og eldri, 24 voru 15−64 ára, sex voru 5−14 ára, níu voru 1−4 ára og fimm undir eins árs.
Í viku 52 greindust 43 tilfelli inflúensu, allt inflúensutegund A, flest eða 27 af tegund A(H3), 14 af tegund A(pdm09) og tvö með óþekkta undirtegund. Einstaklingar sem greindust voru í öllum aldurshópum: 22 einstaklingar 65 ára og eldri, 14 voru 15−64 ára, tveir voru 1−4 ára og fimm undir eins árs.
Í viku 1 (2026) greindust 17 tilfelli inflúensu, eitt tilfelli B og 16 tilfelli A, þar af 8 af tegund A(H3), sex af tegund A(pdm09) og tvö með óþekkta undirtegund. Einstaklingar sem greindust voru í öllum aldurshópum: Átta einstaklingar 65 ára og eldri, fimm voru 15−64 ára, einn var 5−14 ára, einn var 1−4 ára og tveir undir eins árs.
Inflúensa er öndunarfærasjúkdómur af völdum inflúensuveiru. Á hverjum vetri gengur inflúensufaraldur venjulega á tímabilinu október til mars. Inflúensan veldur mismiklum veikindum hjá einstaklingum en veikindin geta verið alvarleg. Þegar smit eru útbreidd er meiri hætta á að einstaklingar í áhættuhópum veikist með alvarlegri afleiðingum, álag eykst einnig á heilbrigðiskerfið og í samfélaginu verður aukning á fjarvistum frá vinnu og skóla.
Tveir meginstofnar inflúensu sem geta sýkt fólk eru af tegund A (sem veldur árlegum faröldrum) og B (sem veldur reglulegum faröldum, aðallega í börnum). Inflúensuveiran breytir sér nær stöðugt og því er samsetningu inflúensubóluefnis endurskoðuð árlega til að það haldi virkni. Þessar breytingar veirunnar geta leitt til misalvarlegra árlegra inflúensufaraldra og virkni bóluefnisins er einnig mismunandi ár frá ári. En jafnvel á árum þegar virkni bóluefnis er minni dregur það úr hættu á alvarlegum veikindum, sjúkrahúsinnlögnum og dauða, sérstaklega hjá áhættu hópum.
Til er veirulyf gegn inflúensu (Tamiflu) sem má nota fyrir einstaklinga sem eru í meiri hættu á alvarlegum veikindum. Lyfinu er ávísað af lækni og þarf að gefa snemma í veikindum og jafnvel áður en rannsóknarniðurstaða fæst.
Nánari upplýsingar um inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.
Bólusetningar
Meðal þeirra sem mælt er með inflúensubólusetningum hjá eru einstaklingar eldri en 60 ára og börn yngri en 5 ára en þátttaka þeirra eldri um 54% eins og er og þátttaka hjá yngri börnum um 22% (mynd 2). Allt bóluefni sem pantað var til landsins þennan veturinn er komið í dreifingu eða búið að nota.

Mynd 2: Þátttaka í inflúensubólusetningum eftir aldurshópum á tímabilinu 2025–2026
Innlagnir á Landspítala
Í viku 51 lágu 22 einstaklingur á Landspítala með inflúensu: 13 voru 65 ára og eldri, sex 15−64 ára, einn 5−14 ára og tveir 1−2 ára.
Í viku 52 lágu 12 einstaklingar á Landspítala með inflúensu: Tíu voru 65 ára og eldri, einn 15−64 ára og einn 1−2 ára.
Í viku 1 lágu 2 einstaklingar á Landspítala með inflúensu, báðir 65 ára og eldri. Sjá mynd 3.

Mynd 3: Fjöldi og aldur einstaklinga með inflúensu í innlögn á Landsspítala í viku 42 2025 til viku 1 2026.
Miðað við upphaf faraldra undanfarin ár og ef tekið er mið af fjölda greininga sést að fjöldi innlagna á Landspítala með eða vegna inflúensu á fyrstu 15 vikum faraldurs er mun hærri í ár en undanfarin ár á þessum árstíma (mynd 4).

Mynd 4: Uppsafnaður fjöldi innlagna með/vegna inflúensu á Landspítala á fyrstu 15 vikum faraldurs (tímabilið 2025–2026 rautt).
Aðrar öndunarfærasýkingar
RS-veirusýkingar
Í viku 51 greindust sex tilfelli RS veirusýkingu (RSV), fjórir einstaklingar 65 ára og eldri, eitt barn 3−4 ára og eitt barn 1−2 ára. Einn einstaklingur 65 ára og eldri lá inni á Landspítala með RS−veiru. Í viku 52 greindust fimm tilfelli RS veirusýkingu (RSV), fjögur börn 1−2 ára og eitt barn undir 1 árs. Tvö börn 1−2 ára lágu inni á Landspítala með RS−veiru. Í viku 1 greindust sjö tilfelli RS veirusýkingu (RSV), tveir einstaklingar 65 ára og eldri, einn 15−64 ára, eitt barn 3−4 ára og þrjú börn undir 1 árs. Enginn lá inni á Landspítala með RS−veiru.
Í október var sett af stað átak í RSV bólusetningum barna sem fæðst hafa eftir lok síðasta RSV tímabils, eða frá 1. maí 2025, með einstofna mótefni, Beyfortus®. Þátttaka hefur verið góð.
Börn fædd í október−janúar eru að meðaltali yfir 60% þeirra barna á fyrsta ári sem þurfa innlögn vegna RSV. Það er því mikilvægt að tryggja aðgang þeirra að bólusetningu sem fyrst eftir fæðingu til að draga úr líkum á að þau smitist af RSV áður en bólusetning er gefin og virðist það hafa gengið vel (sjá mynd 5). Mjög lítið er um skráðar hafnanir, en skylt er að skrá í miðlægan bólusetningagrunn ef barn er ekki bólusett skv. almennu skipulagi sóttvarnalæknis.

Mynd 5: Þátttaka í RSV bólusetningunum hefur verið mjög góð og einna best hjá þeim sem hafa fengið bólusetningu skömmu eftir fæðingu.
Nánari upplýsingar um RSV faraldur þessa tímabils og fyrri tímabila er að finna í mælaborði sem er aðgengilegt á vef embættis landlæknis.

Mynd 6. RSV greiningar hjá sýkla- og veirufræðideild LSH hafa verið fremur fáar undanfarnar vikur miðað við sömu tímabili síðastliðna tvo vetur.

Mynd 7. Aldursdreifing RSV greininga hjá börnum á fyrsta ári. Tímabil 2023–2024 og 2024–2025 sýna aldursdreifingu allt RSV tímabilið.
Jafnvel þótt lítið hafi borið á RSV það sem af er vetri eru teikn um að aldursdreifing greininga sé frábrugðin því sem við höfum vanist og standa vonir til að hægt verði að sýna fram á góð áhrif bólusetninga gegn RSV á heilsufar ungra barna hér á landi.
COVID-19
Fjöldi tilfella COVID-19 hefur haldist nokkuð stöðugur í vetur. Í viku 51 greindust 16 einstaklingar, níu í aldursflokknum 65 ára og eldri, fjórir 15−64 ára og þrír undir 5 ára. Átta einstaklingar lágu inni á Landspítala með COVID-19, sex voru í aldursflokknum 15−64 ára og tveir 15−64 ára. Í viku 52 greindust átta einstaklingar, fjórir í aldursflokknum 65 ára og eldri, tveir 15−64 ára og tveir undir 5 ára. Fjórir einstaklingar lágu inni á Landspítala, tveir voru í aldursflokknum 65 ára og eldri og tveir 15−64 ára. Í viku 1 greindust sjö einstaklingar, fjórir í aldursflokknum 65 ára og eldri, tveir 15−64 ára og einn undir 5 ára. Þrír einstaklingar lágu inni á Landspítala, allir 65 ára og eldri.
Aðrar veirur
Af öðrum öndunarfæraveirum en að ofan, greinist mest af rhinoveiru (kvefi) á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Undanfarinn mánuð hefur vikulegur fjöldi rhinoveirugreininga verið á bilinu 10–30 en í viku 51 greindust 29 með rhinoveiru en í viku 52 greindust 16 og í viku 1 greindust 14. Undanfarnar vikur hefur greiningum human metapneumoveiru fjölgað, í viku 51 greindust sjö tilfelli, í viku 52 níu og í viku 1 greindust 16 tilfelli.
Staðan í Evrópu
Í ríkjum ESB/EES er fjöldi sjúklinga sem leitar til heilsugæslu með einkenni öndunarfærasjúkdóma yfir viðmiðunarmörkum faraldurs í um það bil helmingi ríkja. Þetta bendir til að nú sé veruleg útbreiðsla öndunarfærasýkinga.
Tíðni inflúensu heldur áfram að aukast og flest lönd greina frá víðtækri útbreiðslu. Inflúensa A er ríkjandi í öllum löndum þar sem undirtegundin A(H3N2) er algengust. Útbreiðsla er mest meðal barna 5−14 ára.
Aukning sjúkrahúsinnlagna sést í sumum löndum í öllum aldurshópum en aðallega hjá 65 ára og eldri.
Lítils háttar aukning er í útbreiðslu RSV en tíðni er lægri en undanfarna fjóra vetur á sama tíma Aukning í innlögnum á sjúkrahús í tengslum við RSV sést í nokkrum löndum, aðallega hjá börnum yngri en fimm ára.
Tíðni COVID-19 (SARS-CoV2) sýkinga fer minnkandi í öllum aldurshópum og sjúkrahúsainnlagnir eru fáar.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:
Þiggja inflúensubólusetningu ef í forgangs- eða áhættuhópi.
Þiggja RSV mótefni fyrir þau ungbörn sem það á við.
Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.
Sóttvarnalæknir