Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar. Vika 5 árið 2024

8. febrúar 2024

Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.

Öndunarfærasýkingar. Nýtt tölublað

Fjöldi innlagðra einstaklinga með öndunar­færaveirusýkingu á Landspítala í viku hverri hefur fækkað frá ára­mótum. Fjöldi greininga COVID-19 og RSV hefur einnig farið fækkandi frá áramótum en fjöldi inflúensu­greininga, sem jókst fram að áramótum, hefur síðan sveiflast milli vikna.

Langflest greind tilfelli af inflúensu þennan veturinn hafa, enn sem komið er, verið af inflúensustofni A.

Í fimmtu viku ársins greindist eitt tilfelli af mislingum hérlendis, það fyrsta frá árinu 2019, ásamt einu tilfelli af hettusótt, því fyrsta frá árinu 2020. Einstaklingurinn með mislinga var lagður inn á sjúkrahús vegna veikindanna.

Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma í fimmtu viku ársins 2024.

Sóttvarnalæknir