Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar - Vika 43 árið 2026

29. október 2026

Greiningum á öndunarfærasýkingum fækkar milli vikna sem og legum á Landspítala þar sem öndunarfærasýkingar koma við sögu. Bólusetningar gegn inflúensu eru nú hafnar fyrir alla forgangshópa.

Staðan á Íslandi

  • Talsvert færri greindust með inflúensu í síðustu viku (viku 43) samanborið við vikur 40 til 42. Færri greindust einnig með COVID-19 í viku 43 samanborið við vikur 41 og 42. Þá greindust einnig færri með rhinoveiru, en hún er enn mest áberandi af þeim öndunarfæraveirum sem greinast um þessar mundir. Fleiri greindust með parainflúensu í viku 43 en hafa gert á þessu tímabili. Enn hefur engin RS-veira greinst í vetur.

  • Einstaklingum sem lágu á Landspítala með öndunarfæraveirusýkingu fækkaði milli vikna og vekur þar mesta athygli að enginn lá inni með COVID-19 í viku 43 og tæplega helmingi færri lágu inni með inflúensu í viku 43 en í viku 42.

  • Hlutfall jákvæðra öndunarfærasýna af greindum sýnum hefur lækkað undanfarnar tvær vikur.

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 43 árið 2026 (19.-25. október 2026).

Mynd. Öndunarfæraveirur. Vika 43

Mynd 1: Fjöldi greininga á öndunarfæraveirum og fjöldi einstaklinga inniliggjandi á Landspítala með öndunarfæraveirur, sjá mælaborð.

Staðan í Evrópu

Komum á heilbrigðisstofnanir vegna öndunarfærasýkinga hefur fjölgað í mörgum ríkjum ESB/EES en tíðnin er þó enn almennt lág og lítið um greiningar á inflúensu og COVID-19. Einstaklingar sem greinast með inflúensu og COVID-19 á sjúkrastofnunum eru flestir 65 ára eða eldri. RS-veirusýking greinist vart í ríkjum ESB/EES. Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:

  • Bólusetningar gegn inflúensu eru nú hafnar fyrir alla forgangshópa.

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni öndunarfærasýkingar og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.

Sóttvarnalæknir