Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar - Vika 42 árið 2026

22. október 2026

Greiningum inflúensu og COVID-19 fjölgar lítillega. Sýnatökum vegna öndunarfærasýkinga hefur einnig fjölgað síðustu vikur en hlutfall jákvæðra sýna lækkaði í síðustu viku miðað við vikuna á undan. Það er einkum samhliða fækkun á greiningum rhinoveira, sem hafa verið mest áberandi undanfarið. Engin RS-veira hefur enn greinst á þessu tímabili.

Staðan á Íslandi

Sýnatökum vegna öndunarfærasýkinga fjölgaði um tæp 20% í viku 42 miðað við vikuna á undan. Hlutfall sýna sem greindust jákvæð fyrir öndunarfæraveirum lækkaði hins vegar úr um 47% í 34%, einkum samhliða fækkun greininga á rhinóveirum, sem hafa verið mest áberandi undanfarnar vikur.

Greiningum á inflúensu fjölgar áfram, en staðfest tilfelli eru þó enn tiltölulega fá. Greiningum á COVID-19 hefur einnig fjölgað. Engin tilfelli RS-veiru hafa greinst á þessu tímabili. Af öðrum öndunarfæraveirum greinast nú helst rhinoveira (kvefveira) og enteroveira.

Tölurnar byggja á sýnum sem send eru til rannsóknar og sem fyrr koma flest sýnin frá sjúkrahúsum. Fjöldi einstaklinga sem liggja á Landspítala með öndunarfæraveirusýkingu hefur aukist jafnt og þétt frá því í sumar.

Bólusetningar gegn inflúensu með nefúða eru hafnar fyrir börn á aldrinum 2-4 ára. Hefðbundið inflúensubóluefni fyrir börn frá 6 mánaða að 2 ára aldri og fullorðna er að fara í dreifingu og munu bólusetningar hefjast á næstu dögum.

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 42 árið 2026 (12.-18. október 2026).

Mynd 1: Fjöldi greininga á öndunarfæraveirum og fjöldi einstaklinga inniliggjandi á Landspítala með öndunarfæraveirur, sjá mælaborð.

Inflúensa

Greiningum á inflúensu fer áfram fjölgandi. Fjölgun greininga á inflúensu er þó lítil milli vikna 41 og 42 og minni en sem nam aukningu í sýnatökum.

Í viku 42 greindust 22 einstaklingar með inflúensu. Rúmur helmingur (14 einstaklingar) var 65 ára eða eldri og átta einstaklingar voru 15-64 ára. Langflestir (20 einstaklingar) greindust með inflúensutegund A(pdm09), einn greindist með tegund A(H3) og einn greindist með bæði tegund A(pdm09) og inflúensu B.
Á sama tíma fjölgaði inniliggjandi sjúklingum með inflúensu á Landspítala úr sjö í 11, sem gæti bent til vaxandi álags vegna inflúensu. Hafa ber í huga að hér er um að ræða alla inniliggjandi sjúklinga með jákvæða veirugreiningu, óháð ástæðu innlagnar. Af þeim 11 einstaklingum sem lágu inni í viku 42 voru níu á aldrinum 65 ára og eldri og tveir á aldrinum 15-64 ára.

COVID-19

Greiningum á COVID-19 hefur einnig fjölgað nokkuð síðustu vikur, en aukin sýnataka kann að skýra hluta þeirrar fjölgunar. Fjöldi inniliggjandi sjúklinga með COVID-19 hefur hins vegar haldist svipaður.
Í viku 42 greindust 12 einstaklingar með COVID-19. Meirihlutinn (átta einstaklingar) var 65 ára eða eldri og fjórir einstaklingar voru á aldrinum 15-64 ára. Sex einstaklingar lágu á Landspítala með COVID-19, fimm 65 ára eða eldri og einn á aldrinum 15-64 ára.

Aðrar öndunarfærasýkingar

Greiningum á öðrum öndunarfæraveirum hefur almennt fjölgað frá því í sumar en heldur færri greindust í viku 42 samanborið við vikuna á undan. Rhinoveira er enn ein algengasta öndunarfæraveiran sem greinist og greindust 30 einstaklingar í viku 42, en greiningum rhinoveiru fækkaði þó miðað við vikuna á undan. Ekkert tilfelli RS-veiru greindist í síðustu viku eða á þessu tímabili (frá viku 40).

Staðan í Evrópu

Komum á heilbrigðisstofnanir vegna öndunarfærasýkinga fer fjölgandi í mörgum ríkjum ESB/EES þó tíðnin sé enn almennt lág og enn lítið um greiningar á inflúensu og COVID-19. Einstaklingar sem greinast með inflúensu og COVID-19 í heilsugæslu eru flestir á aldrinum 15-64 ára en þeir sem greinast á sjúkrastofnunum eru flestir 65 ára eða eldri. RS-veirusýking greinist vart í ríkjum ESB/EES. Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Sóttvarnalæknir minnir fólk á að:

  • Hefðbundnar bólusetningar gegn inflúensu hefjast á næstu dögum.

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni öndunarfærasýkingar og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Lágmarka umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu eftir aðstæðum.

Sóttvarnalæknir