Norrænt samstarf um heilbrigðisgögn
2. nóvember 2026
Embætti landlæknis ásamt heilbrigðisráðuneytinu og Háskóla Íslands hefur síðustu tvö ár tekið þátt í norræna verkefninu VALO, sem miðar að því að auðvelda endurnýtingu heilbrigðisgagna til vísindarannsókna, nýsköpunar og stefnumótunar þvert á landamæri. Embættið leiddi vinnu við tillögur að varanlegu norrænu samstarfi um heilbrigðisgögn. Lokaniðurstöður verkefnisins hafa nú verið birtar.

VALO (Value from Nordic health data) var samstarfsverkefni Norðurlandanna fimm. Eistland og Litháen tóku auk þess þátt sem áheyrnaraðilar í seinni áfanga þess. Norræna ráðherranefndin fjármagnaði verkefnið og finnski nýsköpunarsjóðurinn Sitra stýrði því. Yfir 20 ráðuneyti og stofnanir tóku þátt.
Verkefnið snerist um endurnýtingu heilbrigðisgagna (e. secondary use), það er notkun heilbrigðisgagna í öðrum tilgangi en upphaflega var ætlað. Dæmi um slíka notkun eru vísindarannsóknir, nýsköpun og stefnumótun. Helsti hvati verkefnisins var reglugerðin um evrópska heilbrigðisgagnasvæðið (e. European Health Data Space, EHDS) sem samþykkt var í mars 2025, en hún setur meðal annars sameiginlegar reglur um endurnýtingu heilbrigðisgagna.
Sterkur grunnur sem þarf að nýta betur
Norðurlöndin búa öll yfir landsþekjandi heilbrigðisskrám sem ná áratugi aftur í tímann. Einkvæm persónuauðkenni í hverju landi gera kleift að tengja saman gögn, almenningur ber mikið traust til opinberra stofnana og stuðningur við rannsóknir er almennt mikill. Ef gögn landanna eru nýtt saman verða til öflugri rannsóknagrunnar sem nýta má til þess að bæta heilbrigðisþjónustu. Hingað til hefur hins vegar reynst flókið og tímafrekt að vinna með gögn þvert á landamæri.
Þrír meginþættir VALO verkefnisins
Samræmd innleiðing evrópska heilbrigðisgagnasvæðisins
Ráðuneyti og stofnanir landanna báru saman bækur sínar á samstarfsfundum. Þar var fjallað um aðgengi að gögnum, lýsigögn og lagaleg og siðferðileg álitamál. Afraksturinn er drög að norrænum leiðarvísi um innleiðingu EHDS. Á fundunum kom skýrt fram eindreginn vilji þátttakenda til áframhaldandi samstarfs og þörf fyrir vettvang þar sem löndin geta rætt saman og samræmt innleiðingu reglugerðarinnar.
Tilraunaverkefni
Tvö tilraunaverkefni voru gerð til að prófa tvær ólíkar leiðir til þess að greina heilbrigðisgögn yfir landamæri. Í báðum verkefnunum var rannsóknarefnið meðferð við langt gengnu lungnakrabbameini. Gögn frá þátttökusjúkrahúsunum voru samræmd samkvæmt OMOP-gagnalíkaninu.
Í fyrri rannsókninni var notuð dreifð gagnagreining (e. federated analysis). Þá var staðlaður greiningarkóði sendur til sjúkrahúsanna, sem keyrðu hann á eigin gögnum og skiluðu samantekt á niðurstöðum. Í seinni rannsókninni fékk einn rannsakandi fjaraðgang að gögnum í öruggu gagnaúrvinnsluumhverfi (e. secure processing environment, SPE). Þar var hægt að vinna með gögnin án þess að þau væru færð frá upprunalandi sínu.
Rannsóknirnar sýndu að norrænir innviðir eru þegar til staðar til þess að framkvæma öruggar greiningar á heilbrigðisgögnum milli landa án þess að gögn yfirgefi upprunaland sitt. Tilraunaverkefnin sýndu einnig hvar hindranirnar liggja. Það tók langan tíma að fá aðgang að gögnum og kröfur um leyfi voru ólíkar eftir löndum. Jafnvel eftir að leyfi lágu fyrir gátu viðbótarkröfur tafið að greining hæfist. Gögn voru ekki samræmd milli sjúkrahúsa og tiltekin gögn sem skiptu máli fyrir rannsóknina voru ekki til staðar. Þá dugði aðgangur að öruggu gagnaúrvinnsluumhverfi ekki einn og sér til að rannsakendur gætu hafið greiningu. Þeir þurftu líka aðstoð sérfræðinga á hverjum stað.
Norrænt samstarfslíkan
Embætti landlæknis leiddi vinnu við gerð tillagna um það hvernig festa megi norrænt samstarf um heilbrigðisgögn í sessi þegar VALO verkefninu lýkur. Tillögurnar byggja á víðtæku samráði við hagaðila í öllum þátttökulöndunum.
Lagt er til að samstarfið hvíli á fjórum stoðum og byggi jafnframt á norrænum innviðum sem nú þegar eru fyrir hendi og því samstarfi sem þróað var innan VALO verkefnisins:
Norræn stýrinefnd um heilbrigðisgögn marki stefnuna. Hún byggi á núverandi eHealth-hópi Norrænu ráðherranefndarinnar en hlutverk hans, samsetning og starfsemi verði endurskilgreind þannig að hann nái bæði til notkunar gagna við greiningu og meðferð í heilbrigðisþjónustu og jafnframt til endurnýtingar gagna til rannsókna, nýsköpunar og stefnumörkunar.
Varanleg skrifstofa tryggi samfellu og varðveislu þekkingar, óháð því hvaða land fer með formennsku hverju sinni.
Varanlegur samstarfsvettvangur leiði saman stjórnvöld og sérfræðinga í afmörkuðum vinnuhópum. Hann byggi á þeim vettvangi sem reyndist vel í VALO.
Árleg norræn ráðstefna um heilbrigðisgögn verði opinn vettvangur fyrir alla sem starfa á þessu sviði.
Stoðirnar fjórar eru hugsaðar sem ein heild og engin þeirra krefst þess að byggt verði frá grunni. Í tillögunum er einnig lögð áhersla á að varðveita traust almennings. Almenningur og sjúklingar eigi því að hafa rödd í samstarfinu.
„Við eigum að líta á EHDS sem tækifæri,“ segir Sigríður Haraldsd. Elínardóttir, sviðsstjóri heilbrigðisupplýsinga hjá embætti landlæknis, sem stýrði vinnu við mótun norræna líkansins. „Með samræmdri innleiðingu EHDS á Norðurlöndum getum við uppfyllt evrópskar kröfur um heilbrigðisgögn og á sama tíma varðveitt þá sérstöðu og styrkleika sem Norðurlöndin hafa byggt upp síðustu áratugi.“
Hvað tekur við?
Næsta skref er að tryggja stuðning Norrænu ráðherranefndarinnar og stjórnvalda í hverju landi til þess að festa þessa innviði í sessi með fjármögnun og pólitískum stuðningi. Þannig má umbreyta áratuga uppbyggingu og fjárfestingum í heilbrigðisgögnum í varanlegt samkeppnisforskot fyrir Norðurlöndin.
Eftirtaldir aðilar tóku þátt í verkefninu fyrir Íslands hönd
Embætti landlæknis
Sigríður Haraldsd. Elínardóttir, sviðsstjóri heilbrigðisupplýsinga
Rebekka Björg Guðmundsdóttir, verkefnastjóri á heilbrigðisupplýsingasviði
Védís Helga Eiríksdóttir, verkefnastjóri á heilbrigðisupplýsingasviði
Heilbrigðisráðuneyti
Bjarni Sigurðsson, lyfjafræðingur við skrifstofu stjórnsýslu og mönnunar
Guðríður Bolladóttir, staðgengill skrifstofustjóra við skrifstofu stjórnsýslu og mönnunar
Kristín Ninja Guðmundsdóttir, lögfræðingur við skrifstofu stjórnsýslu og mönnunar
Háskóli Íslands
Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, lektor við lagadeild Háskóla Íslands