Móttökuritari - laust starf
4. janúar 2024
Embætti landlæknis leitar að jákvæðum og metnaðarfullum móttökuritara með ríka þjónustulund og góða samskiptahæfni.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Landlæknir logo - Fréttamyndir](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Móttaka embættisins heyrir undir svið rekstrar og öryggis en sviðið ber ábyrgð á innri rekstri embættisins. Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf á góðum og heilsueflandi vinnustað. Um er að ræða 100% ótímabundið starf og er starfið laust frá og með 1. apríl 2024.
Frekari upplýsingar um starfið, helstu verkefni og hæfniskröfur má finna á Starfatorgi.
Nánari upplýsingar veitir:
Þórgunnur Hjaltadóttir, mannauðsstjóri - thorgunnur.hjaltadottir@landlaeknir.is - 510-1900