Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Málþing samfélagsnálgunar í forvarnarmánuði

12. október 2026

Hverjar eru helstu lýðheilsuáskoranir barna og ungmenna í dag? Eru hagsmunir barna og ungmenna alla jafna í forgangi við ákvarðanatöku? Hvernig getur ríkið, sveitarfélög, íþróttafélög og samfélagið í heild tekið höndum saman um að skapa öruggt og heilsueflandi uppvaxtarumhverfi fyrir öll börn og ungmenni?

Þessar spurningar verða í brennidepli á málþingi samfélagsnálgunar í forvarnarmánuði, sem haldið verður miðvikudaginn 14. október kl. 10:45–12:00 í Herkastalanum, Suðurlandsbraut 72. Málþingið verður einnig í beinu streymi.

Yfirskrift málþingsins er „Lýðheilsuáskoranir barna og ungmenna – öryggi og vellíðan fyrir öll börn og ungmenni með samræmdum samfélagsaðgerðum frá þingi til þorps“.

Tilefnið er meðal annars nýleg skýrsla starfshóps heilbrigðisráðherra um lýðheilsuáskoranir barna og ungmenna, þar sem lagðar eru fram 37 tillögur að aðgerðum til ársins 2035. Í skýrslunni er lögð áhersla á að árangursríkt heilsueflingar- og forvarnastarf feli í sér samstilltar, heildrænar aðgerðir á öllum stigum samfélagsins. Ísland hefur með slíku starfi í gegnum tíðina náð miklum árangri í að sporna gegn notkun áfengis og annarri áhættuhegðun á meðal ungmenna. Mikilvægt er að standa vörð um þann árangur sem náðst hefur, vera vakandi fyrir nýjum áskorunum og tryggja að ákvarðanir stjórnvalda og annarra lykilaðila taki mið af lýðheilsu og vernd barna og ungmenna.

Á málþinginu flytja erindi:

  • Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

  • Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn og sviðsstjóri greiningar- og öryggissviðs hjá ríkislögreglustjóra.

  • Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ).

Að erindum loknum verða pallborðsumræður. Eyrún Magnúsdóttir fjölmiðlakona er fundarstjóri og stýrir pallborðsumræðum.

Málþingið er haldið á vegum embættis landlæknis í tilefni af forvarnarmánuði sem unninn er í samstarfi við Forseta Íslands, UMFÍ, ÍSÍ, Heimili og skóla, Samfés, Reykjavíkurborg og skátahreyfinguna.

Öll áhugasöm eru hvött til að fylgjast með málþinginu, á staðnum eða í beinu streymi.