Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Lýðheilsuvísar 2026 kynntir á Egilsstöðum 16. september

7. september 2026

Lýðheilsuvísar 2026 verða kynntir miðvikudaginn 16. september næstkomandi kl. 13:00-15:00 á Berjaya Hérað Hótel Egilsstöðum. Embætti landlæknis stendur að viðburðinum í samstarfi við Múlaþing. Öll eru velkomin á staðinn en einnig verður hægt að fylgjast með kynningunni í streymi.

Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða sem gefa vísbendingar um heilsu og líðan þjóðarinnar og tengda þætti. Birting lýðheilsuvísa á landsvísu og eftir heilbrigðisumdæmum hefur verið árlegur viðburður síðan árið 2016 og undanfarin ár hafa einnig verið gefnir út lýðheilsuvísar fyrir fjölmennustu sveitarfélögin. Lýðheilsuvísum er ætlað að auðvelda heilbrigðisþjónustu, sveitarfélögum, þar með talið heilsueflandi samfélögum, og öðrum hagaðilum að greina stöðuna á sínu svæði, finna styrkleika og áskoranir og meta þarfir íbúa þannig að hægt sé að vinna með markvissum hætti að bættri heilsu og vellíðan allra.

Dagskrá

  • Velkomin. Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings

  • Um lýðheilsuvísa 2026. María Heimisdóttir, landlæknir

  • Lýðheilsuvísar tengdir samfélaginu, heilsu og sjúkdómum. Sigríður Haraldsd. Elínardóttir, sviðsstjóri heilbrigðisupplýsinga

  • Lýðheilsuvísar tengdir sóttvörnum. Guðrún Aspelund, sóttvarnalæknir

  • Lýðheilsuvísar tengdir lifnaðarháttum og líðan. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsusviðs

  • Hagnýt notkun gagna í heimabyggð. Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir, sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu og Anna Alexandersdóttir, sviðsstjóri velferðar hjá Múlaþingi.

  • Umræður

Fundarstjóri er Þórarna Gró Friðjónsdóttir, settur forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands