Lýðheilsuvísar 2026 kynntir á Egilsstöðum
16. september 2026
Lýðheilsuvísar voru kynntir í ellefta sinn í dag, miðvikudaginn 16. september, á Egilsstöðum. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Múlaþing og sendur út í beinu streymi.

Landlæknir, María Heimisdóttir, kynnir lýðheilsuvísa 2026
Lýðheilsuvísar 2026 gefa margar, athyglisverðar vísbendingar um heilsu og líðan þjóðarinnar og tengda þætti. Af því sem hæst ber má meðal annars nefna eftirfarandi:
Fjárhagserfiðleikar: Hlutfall þeirra sem sögðust eiga erfitt með að ná endum saman lækkaði marktækt milli 2024 og 2025 og fór úr ríflega 19% árið 2024 í 15,5% árið 2025 á landinu í heild. Hlutfallið lækkaði í öllum heilbrigðisumdæmum þó að breytingin væri ekki alls staðar marktæk.
Andleg heilsa: Sé litið til alls landsins fækkaði hlutfallslega fullorðnum sem mátu andlega heilsu sína sæmilega eða lélega milli áranna 2024 og 2025 en hlutfallið fór úr ríflega 33% í 30%. Þróunin milli ára er þó mjög mismunandi milli heilbrigðisumdæma. Sums staðar hækkaði hlutfallið og annars staðar lækkaði það, eins og til dæmis á Suðurnesjum þar sem lækkunin er marktæk. Meðal framhaldsskólanema voru 43% sem mátu andlega heilsu sína slæma og 29% sem sögðust vera oft eða alltaf einmana.
Kvíðaraskanir barna: Börnum á aldrinum 6-17 ára sem hafa verið í samskiptum við heilsugæslu og verið með skráða greiningu á kvíða hefur fjölgað hlutfallslega frá árinu 2020, en mismikið milli heilbrigðisumdæma. Á sama tíma hefur ávísunum á lyf við kvíða og þunglyndi til barna á sama aldri staðið nokkuð í stað eða heldur dregist saman. Þar er einnig munur milli heilbrigðisumdæma.
Bólusetningar: Þátttaka í 4 ára endurbólusetningu var 91% á landsvísu en 96% á Austurlandi. Inflúensubólusetning 60 ára og eldri var rúmlega 50%, enn vel undir 70% viðmiði.
Samfélagsmiðlar: Meðal barna í 4.-5. bekk eru 80% sem nota samfélagsmiðla en þau hafa ekki náð leyfilegum aldri til þess að vera á samfélagsmiðlum.
Nánar um kynningarfundinn: María Heimisdóttir landlæknir opnaði og lokaði kynningarfundinum. Auk hennar tóku til máls Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings, Sigríður Haraldsd. Elínardóttir sviðsstjóri heilbrigðisupplýsinga hjá embætti landlæknis, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sviðsstóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis og þær Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu og Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar hjá Múlaþingi. Fundarstjóri var Þórarna Gró Friðjónsdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands.
Í lok fundarins undirrituðu sveitarstjóri Múlaþings og landlæknir samstarfssamning sveitarfélagsins og embættisins um Heilsueflandi samfélag.
Fyrr um daginn funduðu hagaðilar frá Múlaþingi og víðar af Austurlandi með fulltrúum embættis landlæknis. Þar var farið yfir stöðu lýðheilsuvísa á svæðinu, helstu styrkleika og áskoranir og leiðir til úrbóta.
Arnar Sigbjörnsson, verkefnastjóri heilbrigðisupplýsingasviðs
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsusviðs
Gígja Gunnarsdóttir, verkefnastjóri heilsueflandi samfélags
Guðrún Aspelund, sóttvarnalæknir
Sigríður Elínard. Haraldsdóttir, sviðstjóri heilbrigðisupplýsingasviðs