Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lýðheilsuvísar 2025 kynntir mánudaginn 29. september

22. september 2025

Lýðheilsuvísar 2025 verða kynntir mánudaginn 29. september kl. 13:00-15:00 í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði (salur 4. hæð). Embætti landlæknis stendur að viðburðinum í samstarfi við Ísafjarðarbæ. Öll eru velkomin á staðinn en einnig er hægt að fylgjast með kynningunni í streymi.

Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða sem gefa vísbendingar um heilsu og líðan þjóðarinnar og tengda þætti. Birting lýðheilsuvísa á landsvísu og eftir heilbrigðisumdæmum hefur verið árlegur viðburður síðan árið 2016 og þriðja árið í röð eru lýðheilsuvísar einnig gefnir út fyrir fjölmennustu sveitarfélögin. Lýðheilsuvísum er ætlað að auðvelda heilbrigðisþjónustu og sveitarfélögum, þar með talið heilsueflandi samfélögum líkt og Ísafjarðarbæ, að greina stöðuna í sínu umdæmi, finna styrkleika og áskoranir og meta þarfir þannig að hægt sé að vinna með markvissum hætti að bættri heilsu og líðan allra íbúa.

Fundartími: Mánudagur 29. september kl. 13:00-15:00
Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið. Hafnarstræti 1. Ísafjörður (4. hæð)
Fundarstjóri: Lúðvík Þorgeirsson
Málþingið er öllum opið
Hlekkur á streymi

Dagskrá

  • Velkomin. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar

  • Um lýðheilsuvísa 2025. María Heimisdóttir, landlæknir

  • Lýðheilsuvísar tengdir samfélaginu, og heilsu og sjúkdómum. Sigríður Haraldsd. Elínardóttir, sviðsstjóri heilbrigðisupplýsinga, embætti landlæknis

  • Lýðheilsuvísar tengdir sóttvörnum. Guðrún Aspelund, sóttvarnalæknir

  • Lýðheilsuvísar tengdir lifnaðarháttum og líðan. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsusviðs, embætti landlæknis

  • Hagnýt notkun lýðheilsuvísa í heimabyggð. Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs og Dagný Finnsbjörnsdóttir, tengiliður Heilsueflandi samfélags hjá Ísafjarðarbæ

  • Umræður

  • Fundarstjóri er Lúðvík Þorgeirsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

Frekari upplýsingar
Gígja Gunnarsdóttir, verkefnastjóri
gigja.gunnarsdottir@landlaeknir.is