Lögfræðingur á sviði eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu
30. nóvember 2023
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða lögfræðing í fullt starf á svið eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Landlæknir logo - Fréttamyndir](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Helstu hlutverk sviðsins eru eftirlit með heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsmönnum; gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu; kvartanir vegna heilbrigðisþjónustu; rannsókn alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu, ásamt því að sinna lögfræðilegri ráðgjöf innan embættisins.
Í boði er áhugavert og krefjandi starf þar sem reynir á trausta lögfræðilega þekkingu, sjálfstæði og öguð vinnubrögð. Leitað er að áhugasömum og sveigjanlegum einstaklingi sem hefur frumkvæði og metnað til að ná árangri í starfi. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu.
Frekari upplýsingar um starfið, helstu verkefni og hæfniskröfur má finna á Starfatorgi.
Nánari upplýsingar veita:
Jóhann Magnús Lenharðsson, sviðsstjóri - johann.m.lenhardsson@landlaeknir.is - 510-1900
Þórgunnur Hjaltadóttir, mannauðsstjóri - thorgunnur.hjaltadottir@landlaeknir.is - 510-1900