Leiðbeiningar frá Sóttvarnarstofnun Evrópu varðandi fyrirbyggjandi meðferð við kynsjúkdómum með lyfinu doxýcýklín
18. febrúar 2026
Áhyggjur eru vegna vaxandi tíðni kynsjúkdóma, lekanda, klamydíu og sárásótt í Evrópu síðustu ár, einkum meðal karlmanna sem stunda kynlíf með karlmönnum en einnig annarra hópa.

Mynd: ECDC
Árið 2023 jukust tilkynningar um 16% vegna klamydíu, 138% vegna lekanda og 53% vegna sárasóttar samanborið við árið 2019.
Staða kynsjúkdóma á Íslandi
Árið 2023 hafði tíðni lekanda aukist um 159% og tíðni sárasóttar um 78 % samanborið við árið 2019. Engin aukning varð á tíðni klamydíu á sama tímabili en um 2000 tilfelli klamydíu greinast á íslandi á hverju ári.
Hvað er doxý-PEP?
Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) gaf nýlega út leiðbeiningar varðandi notkun sýklalyfsins doxýcýklín, svokallað doxý-PEP, í fyrirbyggjandi meðferð gegn kynsjúkdómum hjá einstaklingum í mikilli áhættu.
Hverjum getur meðferðin gagnast?
ECDC mælir ekki með almennri notkun á doxý-PEP heldur með einstaklingsmiðaðri meðferð þeirra sem eru í meiri áhættu á að smitast af kynsjúkdómi. Þegar íhugað er að gefa þessa meðferð þarf að meta einstaklingsbundið hverjum þessi meðferð gagnast og mælt er með að slíkt mat fari fram í tengslum við aðrar aðgerðir vegna kynheilbrigðis eins og regluleg kynsjúkdómapróf, bólusetningar, HIV-forvarnir og smitrakningu.
Ávinningur meðferðar
Leiðbeiningarnar ECDC snúast að forvörnum þeirra sem eru í mestri áhættu. Rannsóknir hafa sýnt að þessi meðferð getur gagnast í að fyrirbyggja klamydíu og sárasótt hjá karlmönnum sem stunda kynlíf með karlmönnum og transkonum, sem hafa fyrri sögu um kynsjúkdóm. Þessi meðferð er hins vegar ólíkleg til að koma í veg fyrir lekanda þar sem um 58% lekandabaktería er ónæmar fyrir lyfinu eins og staðan er í dag.
Áhætta meðferðar
Of mikil sýklalyfjanotkun getur aukið sýklalyfjaónæmi í framtíðinni sem getur torveldað meðferð kynsjúkdóma en einnig meðferð annarra sjúkdóma eins og sýkinga af völdum Staphylococcus aureus. Aukið sýklalyfjaónæmi þýðir að erfiðara er að nota hefðbundin sýklalyf við sýkingum og jafnvel að engin sýklalyf virki á sýkinguna. Einnig þarf að upplýsa notendur meðferðarinnar um aukaverkanir sem og öryggi við langtímanotkun og hættuna á þróun sýklalyfjaónæmis bæði hjá einstaklingnum sjálfum sem og í samfélaginu.
Samantekt
Ef doxý-PEP er innleitt sem meðferð ætti að tengja það öðrum forvörnum og fyrst og fremst beinast gegn sárasótt, hugsanlega klamydíu en ekki lekanda og sérstaklega fyrir þá sem eru í mestri hættu á smiti. Notendur þurfa að vera upplýstir um ávinning og hugsanlega áhættu, þar á meðal óvissu varðandi langtímaöryggi og hugsanlega þróun sýklalyfjaónæmis. Mælt er með reglulegu endurmati á notkun hvers einstaklings. Þá er virkt eftirlit með áhrifum doxý-PEP á tíðni kynsjúkdóma, sýklalyfjanotkun og tilkomu sýklalyfjaónæmis nauðsynlegt.
Nánar má lesa frétt og leiðbeiningar á vef Sóttvarnarstofnunar Evrópu (ECDC).
Sóttvarnalæknir