Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Joðneysla fullorðinna meiri en fyrri útreikningar sýndu

29. október 2026

Nýlegar efnagreiningar sýna að mun meira joð er í íslenskri mjólk og mjólkurvörum en áður var talið.

Skráð joðmagn í mjólk í gagnagrunninum um efnainnihald matvæla (ÍSGEM) er núna 37 míkrógrömm í 100 millílítrum, en áður var það skráð 11 míkrógrömm í gagnagrunninum. Uppfærða gildið samsvarar því að úr 100 ml af mjólk fáist um 25% af ráðlögðum dagskammti joðs fyrir fullorðna, sem eru 150 míkrógrömm á dag.

Samkvæmt nýjum útreikningum á gögnum úr landskönnun á mataræði fullorðinna frá 2019 til 2021 var meðalneysla þátttakenda á joði því 243 míkrógrömm á dag, en samkvæmt fyrri útreikningum var hún talin vera 136 míkrógrömm á dag. Uppfærðu útreikningarnir gefa því nýja mynd af joðneyslu fullorðinna á Íslandi og sýna að meðaltalsneyslan var talsvert meiri en ráðlagður dagskammtur.

Joðneysla er mismunandi eftir hópum

Joðneysla var þó mismunandi milli þátttakenda í rannsókninni. Fjórðungur þátttakenda fékk 102 míkrógrömm af joði á dag eða minna, sem jafngildir 68% af ráðlögðum dagskammti. Minnst var joðneyslan meðal kvenna á aldrinum 18–39 ára en fjórðungur þeirra fékk 80 míkrógrömm eða minna á dag. Á hinn bóginn var joðneysla nokkuð mikil hjá hluta karla en 5% þeirra fengu 1254 míkrógrömm á dag eða meira. Efri mörk öruggrar neyslu joðs eru 600 míkrógrömm á dag, miðað við daglega neyslu yfir lengri tíma.

Meðaltal

5%

25%

50%

75%

95%

Allir

243

46

102

161

262

644

Karlar

305

53

117

192

306

1254

Konur

185

42

91

142

220

415

Tafla 1. Joð, µg/dag. Meðaltal, hundraðsmörk – ný uppfærð gildi.  

Karlar

Meðaltal

5%

25%

50%

75%

95%

18-39 ára

252

45

84

161

263

974

40-59 ára

365

51

120

201

354

1357

60-80 ára

289

84

139

211

330

744

Tafla 2. Joð, µg/dag. Meðaltal, hundraðsmörk – ný uppfærð gildi. Karlar eftir aldurshópum.

Konur

Meðaltal

5%

25%

50%

75%

95%

18-39 ára

150

31

80

126

206

385

40-59 ára

189

50

99

146

219

430

60-80 ára

213

42

102

162

235

404

Tafla 3. Joð, µg/dag. Meðaltal, hundraðsmörk – ný uppfærð gildi. Konur eftir aldurshópum.

Mjólkurvörur og fiskur eru helstu joðgjafar

Joð er mikilvægt snefilefni sem er nauðsynlegt fyrir myndun skjaldkirtilshormóna. Þau gegna mikilvægu hlutverki í líkamanum, ekki síst á meðgöngu, þar sem þau styðja við eðlilegan vöxt og þroska fósturs. Helstu joðgjafar í fæðunni eru mjólk, mjólkurvörur og magur fiskur. Í ráðleggingum um mataræði er mælt með 350–500 millilítrum eða grömmum af mjólk og mjólkurvörum á dag. Almennt er ekki mælt með mjólkurvörum sem eru mikið sykraðar, fituríkar eða innihalda sætuefni. Ef jurtamjólk og jurtamjólkurvörur eru notaðar í stað mjólkur og mjólkurvara er mikilvægt að velja vörur með viðbættum næringarefnum, svo sem kalki, joði, D-vítamíni og B12-vítamíni. Einnig er mælt með því að borða fisk tvisvar til þrisvar sinnum í viku, þar af feitan fisk einu sinni í viku.

Hverjir þurfa joð sem bætiefni?

Fyrir þau sem hvorki neyta mjólkur, mjólkurvara eða fisks, til dæmis vegna ofnæmis eða annarra þátta, er mikilvægt að taka joð sem bætiefni. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir konur sem hyggja á barneignir. Ekki er mælt með því að barnshafandi konur noti þara eða þaratöflur, þar sem þari getur innihaldið meira joð en æskilegt er að neyta á meðgöngu. Þari getur einnig innihaldið efni sem geta verið skaðleg fyrir fóstrið.

Í skýrslu um helstu niðurstöður landskönnunar á mataræði fullorðinna 2019–2021 skal hafa í huga að fyrri niðurstöður um joðneyslu byggja á gildum sem nú hafa verið uppfærð, sjá töflur í þessari tilkynningu. Þá er ítrekað að fyrir þau sem hvorki neyta mjólkurvara né fisks er mikilvægt að taka joð sem bætiefni. Barnshafandi konur og ungbörn eru sérstaklega viðkvæmir hópar þegar kemur að joðskorti og er mikilvægt að ræða við heilbrigðisstarfsfólk í mæðra- og ungbarnaeftirliti ef þörf er á frekari ráðgjöf.

Joðhagur ungra barna

Árin 2024 til 2025 setti embættið af stað rannsókn til að meta joðhag barna á aldrinum 2-3 ára. Frumniðurstöður sýna að joðhagur þessa aldurshóps sé viðunandi samkvæmt viðmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar. Niðurstöður rannsóknarinnar verða birtar á næsta ári.

Samantekt

Uppfærðir útreikningar á joðneyslu fullorðinna gefa mun hagstæðari mynd af joðneyslu en fyrri niðurstöður bentu til. Þeir sýna þó jafnframt að joðneysla er mjög breytileg milli hópa. Bæði of lítið og of mikið joð getur haft neikvæð áhrif á skjaldkirtilinn. Því er gott að hafa hugfast að mjólkurvörur, aðrar en ostur, og fiskur, veita okkur hæfilegt magn af joði ef þessara matvæla er neytt í samræmi við ráðleggingar um mataræði. Ráðlagður dagskammtur fyrir fullorðna af joði er 150 míkrógrömm á dag.

Niðurstöðurnar undirstrika einnig mikilvægi þess að upplýsingar um næringarefnainnihald matvæla séu uppfærðar reglulega, þar sem breytingar á framleiðslu og samsetningu matvæla geta haft veruleg áhrif á mat á næringarefnaneyslu landsmanna.

Frekari upplýsingar
Jóhanna Eyrún Torfadóttir, verkefnastjóri næringar
johanna.e.torfadottir@landlaeknir.is
Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnastjóri næringar
holmfridur.thorgeirsdottir@landlaeknir.is