Ísland tekur þátt í evrópsku herferðinni Skissum sýklalyfjaónæmi
16. febrúar 2026
Ísland tekur þátt í evrópsku herferðinni Skissum sýklalyfjaónæmi (Sketching AMR), sem er hluti af evrópska samstarfsverkefninu EU-JAMRAI-2 (Joint Action on Antimicrobial Resistance and Healthcare-Associated Infections 2), sameiginlegu átaki Evrópuríkja gegn sýklalyfjaónæmi og sýkingum tengdum heilbrigðisþjónustu.

Herferðin leggur áherslu á að nýta skapandi og sjónræna miðla til að auka þekkingu og skilning á sýklalyfjaónæmi.
Herferðin nýtir einfaldar teikningar, eða skissur, og tákn til að gera sýklalyfjaónæmi sýnilegra og aðgengilegra. Skissurnar voru unnar út frá sjónarhorni Einnar heilsu (One Health), sem tengir saman heilbrigði fólks, dýra og umhverfis í skilaboðum um mikilvægi aðgerða gegn sýklalyfjaónæmi.
Alls eru 30 myndir frá 30 teiknurum frá 30 löndum í albúminu en Hugleikur Dagsson var fulltrúi Íslands. Listafólkið fékk það verkefni að tengja saman listir og vísindi til þess að ljá einu stærsta heilbrigðisvandamáli samtímans - sýklalyfjaónæmi - form, lit og tilfinningu. Myndirnar voru birtar á Facebook-síðum embættis landlæknis og sóttvarnalæknis sem og á Instagram-síðu embættis landlæknis.
Herferðin hefur verið sett upp sem farandsýning sem ferðast á milli borga í Evrópu (byrjar í Vín, Varsjá og Brussel) sem götusýning. Einnig er von á prentuðum eintökum (bókum) til Íslands og eru áhugasöm hvött til að hafa samband ef þau óska eftir eintaki (svl@landlaeknir.is).
#eaad #waaw #europeancommission🇪🇺 #onehealth_eu
Sjá nánar:
Sóttvarnalæknir