Fara beint í efnið

Hugum að vellíðan og verndandi þáttum í lífi barna og ungmenna – Málþing í tilefni Forvarnardagsins 2023

4. október 2023

Forvarnardagurinn verður haldinn í átjánda skipti í dag 4. október 2023.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Forvarnardagurinn verður haldinn í átjánda skipti í dag 4. október og af því tilefni er boðið upp á málþing með yfirskriftinni Hugum að vellíðan og verndandi þáttum í lífi barna og ungmenna. Málþingið hefst kl. 10:30 og verður í streymi á vefsíðu Forvarnardagsins en einnig hér á vef embættis landlæknis.

Dagskrá málþings:

  • Skólameistari Borgarholtsskóla býður gesti velkomna

  • Fundarstjórn – Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsusviðs embættis landlæknis

Til máls taka:

  • Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson

  • Landlæknir, Alma D. Möller

  • Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson

  • Margrét Lilja Guðmundsdóttir, þekkingarstjóri hjá Planet Youth: Hugum að því sem virkar í lífi barna og ungmenna

  • Starfsfólk og nemendur úr Borgarholtsskóla segja frá heilsuviku skólans og framkvæmd við dagskrá Forvarnardagsins á síðasta ári

Grunn- og framhaldsskólar landsins geta skráð sig til þátttöku á vefsíðu Forvarnardagsins og geta í kjölfarið nálgast efni þar sem sjónum er sérstaklega beint að ungmennum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Lögð er áhersla á verndandi þætti gegn áhættuhegðun; samveru með fjölskyldu, þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og því að leyfa heilanum að þroskast. Gengið er út frá að skólar vinni verkefnin á tímabilinu 4. – 20. október. Nemendur geta tekið þátt í verðlaunaleik sem kynntur er á vefsíðu Forvarnardagsins. Skilyrði fyrir þátttöku er að nemendur séu í 9. bekk grunnskóla eða á fyrsta ári í framhaldsskóla og skólinn þeirra taki þátt í Forvarnardeginum.

Sveitarfélög eru hvött til að setja forvarnir á dagskrá í októbermánuði. Mörg sveitarfélög hafa undanfarin ár skipulagt dagskrá forvarna í októbermánuði í samstarfi við ýmsa aðila, félög og stofnanir í þeirra samfélagi. Í ár er einnig er mikil hvatning til foreldra að taka þátt og endurvekja gott foreldrasamstarf en þar geta skólar og sveitarfélög veitt góðan stuðning.

Verkefnastjórn Forvarnardagsins
Ingibjörg Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Heilsueflandi grunnskóla
Inga Berg Gísladóttir, verkefnastjóri Heilsueflandi framhaldsskóla