Forvarnir gegn RS-veiru hjá ungbörnum: Góður árangur og næstu skref
20. október 2026
Almennar ónæmisaðgerðir gegn RS-veiru (RSV) hófust á Íslandi haustið 2025 og hefur árangurinn fyrsta veturinn verið mjög góður.

Þátttaka foreldra var afar góð og fyrstu niðurstöður benda til verulegrar fækkunar alvarlegra RSV-sýkinga hjá yngstu börnunum. Nú hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að tryggja varanlega fjármögnun þessara forvarna og er hafinn undirbúningur að áframhaldandi áætlun.
RS-veiran er algeng orsök öndunarfærasýkinga hjá ungum börnum og getur valdið alvarlegum veikindum, einkum á fyrstu mánuðum ævinnar. Til að fyrirbyggja slík veikindi var ungbörnum hérlendis síðasta vetur boðið í fyrsta sinn langvirkt einstofna mótefni, nirsevimab (Beyfortus), sem gefið er með einni sprautu og veitir vernd í að minnsta kosti fimm til sex mánuði.
Hvernig var verkefnið skipulagt?
Þegar ákveðið var að hefja þessar ónæmisaðgerðir vorið 2025 var um að ræða tímabundið verkefni til tveggja vetra (flensutímabila), 2025–2026 og 2026–2027. Við undirbúninginn þurfti að skilgreina markhóp og ákveða magn mótefnis til kaupa fyrir bæði tímabilin.
Ákveðið var að leggja áherslu á yngstu ungbörnin, enda er hættan á alvarlegum RSV-sýkingum mest á fyrstu mánuðum ævinnar. Við ákvörðun aldursmarkanna var meðal annars stuðst við íslensk gögn um sjúkrahúsinnlagnir vegna RSV og þær erlendu rannsóknir sem þá lágu fyrir.
Samkvæmt núverandi fyrirkomulagi er mótefnið boðið börnum sem fæðast á skilgreindu RSV-tímabili, frá október til mars, og börnum sem fæðast utan þess tímabils og eru yngri en sex mánaða við upphaf þess. Fyrir veturinn 2026–2027 á þetta við um börn fædd frá 1. maí 2026 (sama og var gert á síðasta ári). Mótefnið er einnig boðið tilteknum börnum í áhættuhópum á öðru aldursári.
Aldursmörkin endurspegla þannig forgangsröðun við upphaf verkefnisins en ekki að mótefnið gagnist eingöngu börnum yngri en sex mánaða. Áhættan á alvarlegum veikindum minnkar almennt með hækkandi aldri en engin skörp líffræðileg skil eru á milli barna fæddra í lok eins mánaðar og byrjun þess næsta. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að einnig getur verið ávinningur af mótefnagjöf hjá eldri ungbörnum.
Innkaup mótefnisins voru skipulögð með löngum fyrirvara miðað við þann markhóp sem ákveðinn var fyrir verkefnið. Framleiðsla og afhending mótefnisins tekur tíma og því er ekki einfalt að stækka markhópinn með skömmum fyrirvara þegar innkaup fyrir viðkomandi vetur hafa þegar verið ákveðin.
Mjög góður árangur fyrsta veturinn
Þátttaka í mótefnagjöfinni veturinn 2025–2026 var mjög góð og mikill meirihluti foreldra þáði hana fyrir börn sín.
Fyrstu niðurstöður úr íslenskum gögnum benda til verulegrar fækkunar RSV-tengdra sjúkrahúsinnlagna hjá börnum yngri en eins árs. Einnig eru vísbendingar um færri komur í heilsugæslu vegna öndunarfæraeinkenna og minni notkun tiltekinna lyfja.
Þetta eru mjög hvetjandi bráðabirgðaniðurstöður sem samræmast góðum árangri sem komið hefur fram í erlendum rannsóknum. Frekari úrvinnsla stendur þó yfir, meðal annars þar sem RSV-faraldurinn síðasta vetur var seinna á ferðinni og minni en undanfarin ár.
Hvað tekur við?
Með ákvörðun heilbrigðisráðherra um varanlega fjármögnun verður hægt að skipuleggja þessar forvarnir til lengri tíma og endurmeta fyrirkomulag þeirra fyrir veturinn 2027–2028 og áfram.
Sóttvarnalæknir mun meðal annars skoða hvort rétt sé að útvíkka markhópinn þannig að fleiri börn njóti verndar á fyrsta RSV-tímabili ævinnar. Þá kemur til greina að bjóða öllum börnum mótefnið á fyrsta RSV-tímabili þeirra, ýmist skömmu eftir fæðingu eða áður en faraldurinn hefst, eftir fæðingartíma barnanna.
Við það mat verður stuðst við nýjustu erlendar rannsóknir og íslensk gögn um sjúkrahúsinnlagnir, veikindi og notkun heilbrigðisþjónustu. Nú er unnið úr gögnum frá síðasta vetri og jafnframt verður fylgst með þróun RSV-faraldursins í vetur.
Þar sem tryggja þarf innkaup mótefnisins með góðum fyrirvara verða ákvarðanir um magn fyrir næsta vetur að byggjast á bestu upplýsingum sem þá liggja fyrir, þótt endanlegt mat á árangri beggja vetra verði ekki lokið.
Markmiðið er að sem flest börn njóti verndar gegn alvarlegum RSV-sýkingum og að fyrirkomulag ónæmisaðgerðanna taki mið af nýjustu þekkingu og einnig aðstæðum hér á landi.
Sóttvarnalæknir