Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Forvarnardagurinn 2025: Samvera - að tilheyra - tengsl

15. október 2025

Málþing Forvarnardagsins 2025 var haldið miðvikudaginn 1. október í Vogaskóla.

Aðstoðarskólastjóri Vogaskóla, Aðalsteinn Hjartarson, bauð gesti velkomna og sagði í stuttu máli frá skólanum, meðal annars að skólinn væri símalaus skóli. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsusviðs hjá embætti landlæknis, tók síðan við fundarstjórn. Ávörp fluttu forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, María Heimisdóttir landlæknir og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri.

Raddir unga fólksins voru stór hluti af dagskránni en til máls tóku Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir frá Jafningjafræðslu Hins hússins, Embla og Kári sem kynnt hafa Riddara kærleikans í sumar og Eva Karítas Bóasdóttir, nemandi í Verzlunarskóla Íslands, sem las upp tilvitnanir í svör ungmenna úr verkefni Forvarnardagsins 2024.

Skýrsla Forvarnardagsins 2024 kemur formlega út í dag en þar má sjá tilvitnanir í svör ungmenna.

Áhersla á verndandi þætti gegn áhættuhegðun

Þetta er í 20. skipti sem Forvarnardagurinn er haldinn í grunnskólum og í 15. skipti í framhaldsskólum. Grunn- og framhaldsskólar landsins geta skráð sig til þátttöku á vefsíðu Forvarnardagsins og í kjölfarið nálgast efni þar sem sjónum er sérstaklega beint að ungmennum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Lögð er áhersla á verndandi þætti gegn áhættuhegðun: samveru með fjölskyldu, þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og því að leyfa heilanum að þroskast. Einnig er unnið með þætti sem veita vellíðan, svo sem félagsleg tengsl, svefn, hreyfingu, hollt mataræði, vímulausan lífstíl og að veita því jákvæða athygli. Nemendur svara spurningum og vinna verkefni tengd snjalltækjum og samfélagsmiðlum. Gengið er út frá að skólar vinni verkefnin á tímabilinu 1. – 24. október. Nemendur geta tekið þátt í verðlaunaleik, sem tengist verkefninu, þar sem áherslan er að vinna með áskoranir og lausnir sem tengjast símum, skjátækjum og samfélagsmiðlum. Hér má sjá kynningu á verðlaunaleik Forvarnardagsins. Skilyrði fyrir þátttöku er að nemendur séu í 9. bekk grunnskóla eða á fyrsta ári í framhaldsskóla og skólinn þeirra taki þátt í Forvarnardeginum.

Mynd. Forvarnardagurinn 2025. Hópmynd af samstarfsaðilum, þeim sem fluttu erindi og nemum úr Vogaskóla og MS

Embætti landlæknis fer með verkefnastjórn Forvarnardagsins og samstarfsaðilar eru embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Rannsóknir og greining, Planet Youth, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Samfés, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samstarf félagasamtaka í forvörnum, Bandalag íslenskra skáta, Ríkislögreglustjóri og Heimili og skóli.

Sveitarfélög eru hvött til að setja forvarnir á dagskrá í októbermánuði. Mörg sveitarfélög hafa undanfarin ár skipulagt dagskrá forvarna í októbermánuði í samstarfi við ýmsa aðila, félög og stofnanir í þeirra samfélagi. Einnig er mikil hvatning til foreldra að taka þátt og endurvekja gott foreldrasamstarf en þar geta skólar, félagsmiðstöðvar og sveitarfélög veitt góðan stuðning.

Við hvetjum skóla, félagsmiðstöðvar, íþróttafélög, foreldrafélög, samfélög og aðra að huga vel að því að fá fagfólk til að tala við börn og ungmenni um forvarnir og áhættuhegðun. Faglært starfsfólk í skólum, félagsmiðstöðvum og aðrir sem vinna með börnum og ungmennum eru best til þess fallnir að sinna forvarnarkennslu og fræðslu. Ef utanaðkomandi aðilar eru fengnir til að tala við börn og ungmenni hvað áhættuhegðun varðar þarf að huga vel að því hvernig fræðslan er sett fram og sérstaklega að ekki sé verið að valda skaða. Í þessu samhengi er bent á staðreyndarblað um Hvað virkar í tóbaks-, áfengis- og vímuforvörnum í skólum og Alþjóðlega staðla um vímuefnaforvarnir.

Frekari upplýsingar
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsusviðs
Ingibjörg Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Heilsueflandi grunn- og framhaldsskóla
Lísbet Sigurðardóttir, verkefnastjóri Samanhópsins
Ösp Árnadóttir, verkefnastjóri í áfengis- og vímuvörnum og geðrækt