Embætti landlæknis óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á svið eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu
7. júní 2023
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á svið eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Landlæknir logo - Fréttamyndir](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Sviðið hefur m.a. eftirlit með heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsmönnum og umsjón með gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu. Sviðið tekur á móti ábendingum og rannsakar kvartanir sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu. Rannsóknir óvæntra atvika heyra einnig undir sviðið.
Um er að ræða áhugavert, krefjandi og fjölbreytt starf sem reynir á fagmennsku og samskiptahæfni. Í starfinu gefst tækifæri til að til að stuðla að gæðum og öryggi innan heilbrigðisþjónustunnar.
Frekari upplýsingar um starfið, helstu verkefni og hæfnikröfur má finna á Starfatorgi.
Nánari upplýsingar veita:
Jóhann Magnús Lenharðsson, sviðsstjóri – johann.m.lenhardsson@landlaeknir.is
Þórgunnur Hjaltadóttir, mannauðsstjóri – thorgunnur.hjaltadottir@landlaeknir.is