Elísabet Benedikz sett tímabundið í embætti landlæknis
28. janúar 2026
Heilbrigðisráðherra hefur sett Elísabetu Benedikz tímabundið í embætti landlæknis á meðan María Heimisdóttir landlæknir er í veikindaleyfi.

Elísabet er læknir að mennt með sérfræðileyfi í lyflækningum, gjörgæslulækningum og bráðalækningum auk þess að vera með meistarapróf í opinberri stjórnsýslu. Hún hefur um árabil starfað sem yfirlæknir á Landspítala, meðal annars á bráðadeild og gæða- og sýkingavarnadeild. Síðastliðin tvö ár hefur hún verið yfirlæknir stjórnsýsludeildar klínískrar þjónustu á Landspítala.
Elísabet tekur til starfa 1. febrúar næstkomandi.
Nánari upplýsingar
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is