Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Dagur án tóbaks – 31. maí 2026

31. maí 2026

Alþjóðlegur dagur gegn tóbaki 2026: Verndum börn og ungmenni gegn blekkingum tóbaksiðnaðarins

Á degi án tóbaks, þann 31. maí, beinir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) athyglinni að blekkjandi markaðsaðferðum tóbaks- og nikótíniðnaðarins. Herferðin í ár byggir á áherslum síðasta árs og afhjúpar hvernig iðnaðurinn sérsníður vörur sínar að ungu fólki, herjar á nýjar kynslóðir og viðheldur nikótínfíkn þeirra sem þegar eru háðir nikótíni. Iðnaðurinn notar meðal annars aðlaðandi hönnun, bragðgefni og markaðssetningu til að laða að nýja notendur. Þessar aðferðir ógna þeim dýrmæta árangri sem náðst hefur í tóbaksvörnum og lýðheilsu um allan heim.

Aukin notkun nikótínpúða

Á sama tíma og dregið hefur úr reykingum á Íslandi hefur notkun nikótínpúða aukist verulega, sérstaklega meðal ungs fólks. Þetta sést einnig í mörgum öðrum löndum, líka þar sem vel hefur gengið að ná niður reykingum.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gefið út viðamikla skýrslu um nikótínpúða sem sýnir hvernig notkun þeirra hefur margfaldast á undanförnum árum. Skýrslan útskýrir einnig hvernig iðnaðurinn starfar og hvernig stjórnvöld geta brugðist við til að draga úr þessari þróun, til dæmis með lagasetningu.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur einnig gefið út myndræn upplýsingablöð sem sýna hvernig tóbaks- og nikótíniðnaðurinn notar bragðefni til að laða að nýja notendur og sérsníður vörur sínar til að gera notandann háðan með blekkjandi markaðsaðferðum.

Þegar fólk byrjar ungt að nota nikótínvörur eru meiri líkur á að það verði háð þeim til langs tíma. Heili ungmenna er enn að þroskast og það að verða háður nikótíni getur haft neikvæð áhrif á nám, einbeitingu og skap.

Á vefnum „Óþolandi“ má lesa um algengar mýtur og nálgast frekari fróðleik um notkun á nikótínpúðum.

Frekari upplýsingar
Viðar Jensson, verkefnastjóri tóbaksvarna
hafsteinn.v.jensson@landlaeknir.is