Fara beint í efnið

Bólusetning gegn COVID-19 veturinn 2023-2024

2. október 2023

COVID-19 bóluefni verður tilbúið til afhendingar frá dreifingaraðila frá og með deginum í dag, 2. október. Bóluefni sem notað verður í bólusetningum veturinn 2023–2024 samkvæmt samningum heilbrigðisráðuneytis er Comirnaty XBB.1.5 bóluefni.

Bólusett í handlegg.

Eingöngu er mælt með bólusetningu áhættuhópa frá 5 ára aldri og forgangshópa með þessu uppfærða bóluefni gegn þeim undirafbrigðum omikron sem hér hafa verið ráðandi þetta ár. Á vef embættis landlæknis má finna sérstakar leiðbeiningar um COVID-19 bólusetningar haustsins.

Bóluefnið má gefa á sama tíma og inflúensubóluefni. Áhættu- og forgangshópar eru nánast þeir sömu fyrir bæði bóluefnin, en þar sem afhending inflúensubóluefnis hefst ekki fyrr en 16. október og meira virðist vera um COVID-19 í samfélaginu nú þegar en var í sumar geta aðilar sem sinna bólusetningum kosið að bjóða upp á COVID-19 bólusetningar áður en inflúensubólusetningar geta hafist. Mælt er með að tvær vikur líði þá á milli bólusetninga ef kostur er, til að draga úr hættu á að aukaverkanir af öðru bóluefninu séu skrifaðar á hitt bóluefnið. Ef tilefni er til, s.s. vegna ferðalags, þá má gefa bóluefnin með styttra millibili.

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við COVID-19 bólusetningar:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum eða eru ónæmisbæld af völdum lyfja eða sjúkdóma.

  • Barnshafandi konur.

  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

Bóluefnið er forgangshópum að kostnaðarlausu.

Aðilar sem sinna COVID-19 bólusetningum eru heilsugæslur, hjúkrunarheimili, sjúkrahús og skv. samningum heilbrigðisráðuneytis, ákveðin apótek á höfuðborgarsvæðinu. Bent er á vefsíður stofnana og fyrirtækja fyrir auglýsingar um fyrirkomulag bólusetninga á hverjum stað.

Sóttvarnalæknir