Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Bólusetning gegn árlegri inflúensu veturinn 2026-2027

21. september 2026

Inflúensubóluefni verður tilbúið til afhendingar frá dreifingaraðila frá og með 15. október næstkomandi.

Tvö ólík bóluefni gegn inflúensu verða notuð hér á landi í vetur:

  1. Hefðbundið óvirkjað inflúensubóluefni sem hæfir börnum frá 6 mánaða aldri og fullorðnum verður tilbúið til afhendingar frá dreifingaraðila frá og með 15. október næstkomandi. Bóluefni sem notað verður í bólusetningum veturinn 2026-2027 samkvæmt samningum sóttvarna­læknis við Icepharma er:

    Influvac – 90.000 skammtar samkvæmt samningi við útboð 2025

    Eins og undanfarin ár verður dreifingu forgangsraðað til hjúkrunarheimila og heilbrigðisstofnana sem bólusetja forgangshópa fyrstu vikurnar. Þess er vænst að bólusetningar forgangshópa geti hafist um allt land upp úr miðjum október en aðrir sem fá úthlutað bóluefni fá það væntanlega í nóvember, þar með talið aðilar sem sinna bólusetningum á vinnustöðum.

    Dreifing óvirkjaðs inflúensubóluefnis til aðila sem sinna bólusetningum miðast við það magn sem pantað var síðastliðinn vetur nema annað hafi komið fram í samskiptum sóttvarnalæknis við ábyrgðaraðila bólusetninga.

  2. Lifandi veiklað nefúðabóluefni fyrir börn frá 2 ára aldri verður tilbúið til afhendingar til heilsugæsla frá 30. september næstkomandi:

    Fluenz – 15.000 skammtar samkvæmt samningi sóttvarnalæknis við Vistor við útboð 2025

    Bóluefnið er ætlað fyrir öll börn 2-4 ára og 5-17 ára börn með áhættuþætti en án frábendinga. Börn sem ekki geta þegið Fluenz verður boðið Influvac ef það hæfir. Börn sem óskað er eftir inflúensubólusetningu fyrir þótt þau hafi ekki sérstaka áhættuþætti geta fengið Fluenz meðan það er til ófyrnt.

    Ef aðrir en heilsugæslur hafa hug á að bjóða Fluenz fyrir börn má senda fyrirspurn á sóttvarnalækni (mottaka@landlaeknir.is).

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

  • Börn undir 5 ára aldri, sem hafa náð 6 mánaða aldri þegar bólusett er.

  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.

  • Barnshafandi konur.

  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

  • Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu samanber frétt 2023.

Kostnaður vegna inflúensubólusetninga fyrir forgangshópa:

  • Bóluefni gegn inflúensu er forgangshópum að kostnaðarlausu.

  • Um komugjöld í heilsugæslu vegna inflúensubólusetningar gildir 8. gr. reglugerðar nr. 1495 frá 2025.

Sjá nánar Dreifibréf nr. 1/2026 um bólusetningu gegn árlegri inflúensu

Sóttvarnalæknir