Fara beint í efnið

Bólusetning gegn árlegri inflúensu veturinn 2023–2024

12. september 2023

Inflúensubóluefni verður tilbúið til afhendingar frá dreifingaraðila frá og með 16. október nk.

Bólusett í handlegg.

Bóluefni sem notað verður í bólusetningum veturinn 2023–2024 samkvæmt samningum sóttvarnalæknis við Vistor er Vaxigrip Tetra - 95.000 skammtar skv. samningi við útboð 2019 og viðaukasamningum 2021.

Eins og undanfarin ár verður dreifingu forgangsraðað til heilbrigðisstofnana og hjúkrunarheimila fyrsta mánuðinn. Þess er vænst að bólusetningar forgangshópa geti hafist um allt land eftir miðjan október en aðrir sem fá úthlutað bóluefni fá það eftir miðjan nóvember, þ.m.t. aðilar sem sinna vinnustaðabólusetningum.

Dreifing bóluefnis til aðila sem sinna bólusetningum miðast við það magn sem pantað var eða skráð notað sl. vetur nema annað hafi komið fram í samskiptum sóttvarnalæknis við ábyrgðaraðila bólusetninga.

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

  • Öll börn fædd 1.1.2020–30.6.2023, sem hafa náð 6 mánaða aldri þegar bólusett er.

  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.

  • Barnshafandi konur.

  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

Bóluefnið er forgangshópum að kostnaðarlausu.

Sjá nánar:

Sóttvarnalæknir