Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Ársskýrslur um skimun fyrir legháls- og brjóstakrabbameini 2024

30. september 2025

Embætti landlæknis hefur birt skýrslur fyrir árið 2024 um skimun fyrir leghálskrabbameini og skimun fyrir brjóstakrabbameini.

Í skýrslunum er birt gæðauppgjör út frá þeim gæðavísum sem valdir voru af embætti landlæknis eftir að núverandi fyrirkomulagi krabbameinsskimana var komið á. Þetta er í fjórða sinn sem gæðauppgjörið er birt. Í skýrslunum er meðal annars gerð grein fyrir tölum um boð og mætingu í skimun fyrir legháls- og brjóstakrabbameini á landsvísu árið 2024. Einnig er fjallað um svartíma, niðurstöður rannsókna og nýgengi og dánartíðni vegna þessara krabbameina.

Helstu niðurstöður eru að þátttökuhlutfall í skimun fyrir brjóstakrabbameini hækkaði á milli ára og var 61% árið 2024. Á síðustu tveimur árum hefur þátttaka því aukist um 9 prósentustig þrátt fyrir að vera enn undir viðmiðunarmörkum um 75% mætingu.

Þegar skimun fyrir krabbameini í leghálsi er annars vegar sýna niðurstöður fyrir árið 2024 að um 64% kvenna mættu í skimun fyrir leghálskrabbameini sem er hækkun um tvö prósentustig frá fyrra ári.

Frekari upplýsingar
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is