Fara beint í efnið

Ársskýrslur um skimun fyrir legháls- og brjóstakrabbameini 2022

13. febrúar 2024

Gefnar hafa verið út á vef embættisins ársskýrslur fyrir árið 2022 um skimun fyrir leghálskrabbameini og skimun fyrir brjóstakrabbameini. Einnig er birt umfjöllun um krabbameinsskimanir í nýju tölublaði Talnabrunns.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Í skýrslunum er birt gæðauppgjör út frá þeim gæðavísum sem valdir voru af embætti landlæknis eftir að núverandi fyrirkomulagi krabbameinsskimana var komið á. Er þetta í annað sinn sem gæðauppgjörið er birt. Í skýrslunum er meðal annars gerð grein fyrir tölum um boð og mætingu í skimun fyrir legháls- og brjóstakrabbameini á landsvísu árið 2022. Einnig er fjallað er um svartíma, niðurstöður rannsókna og nýgengi og dánartíðni vegna þessara krabbameina.

Gæðauppgjör vegna ársins 2023 verður gefið út síðar á árinu.

Frekari upplýsingar
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is