Fara beint í efnið

Ársskýrslur um skimun fyrir legháls- og brjóstakrabbameini 2021

3. maí 2023

Gefnar hafa verið út ársskýrslur fyrir árið 2021 um skimun fyrir leghálskrabbameini og skimun fyrir brjóstakrabbameini.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Gefnar hafa verið út á vef embættisins ársskýrslur fyrir árið 2021 um skimun fyrir leghálskrabbameini og skimun fyrir brjóstakrabbameini.

Í skýrslunum er í fyrsta sinn birt gæðauppgjör út frá þeim gæðavísum sem valdir voru af embætti landlæknis eftir að núverandi fyrirkomulagi krabbameinsskimana var komið á. Í skýrslunum er meðal annars gerð grein fyrir tölum um boð og mætingu í skimun fyrir legháls- og brjóstakrabbameini á landsvísu árið 2021. Einnig er fjallað er um svartíma, niðurstöður rannsókna og nýgengi og dánartíðni vegna þessara krabbameina.

Gæðauppgjör vegna ársins 2022 verður gefið út síðar á árinu.

Frekari upplýsingar veitir:
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is