Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Ársskýrsla um sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería hjá mönnum og dýrum á Íslandi 2025

29. september 2026

Ársskýrsla um sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería hjá mönnum og dýrum á Íslandi árið 2025 er komin út í fjórtánda sinn. Skýrslan byggir á Einnar heilsu nálgun og fjallar einnig um sýklalyf og sýklalyfjaónæmi í umhverfi.

Notkun sýklalyfja hjá fólki

Heildarsala sýklalyfja hjá mönnum var 18,6 skilgreindir dagskammtar á hverja 1.000 íbúa á dag (DID) og dróst saman um 4,6% frá fyrra ári. Notkunin er þó enn meiri hérlendis en á öðrum Norðurlöndum.

Hlutfall sýklalyfja sem teljast æskilegt fyrsta val („Access“) við meðhöndlun sýkinga er hátt á Íslandi í samanburði við önnur ríki ESB/EES, eða 81%. Hlutfallið er þó lægra innan sjúkrahúsa en utan þeirra, þar sem sýkingar á sjúkrahúsum eru oftar af völdum ónæmra sýkla og krefjast því frekar meðhöndlunar með sýklalyfjum sem nota ætti sparlega („Watch“ eða „Reserve“ sýklalyf).

Sýklalyfjanæmi hjá fólki

Sýklalyfjaónæmi er enn almennt lítið á Íslandi í evrópskum samanburði en þróun ákveðinna gerða ónæmis veldur áhyggjum. Hlutfall ónæmis fyrir þriðju kynslóðar kefalósporínum hefur vaxið úr 4,2% ífarandi stofna árið 2016 í 11,6% stofna árið 2025. Þróun þriðju kynslóðar kefalósporín ónæmis hjá E. coli er áhyggjuefni en áætlað nýgengi slíkra blóðsýkinga jókst úr 5,04 á hverja 100.000 íbúa árið 2019 í 10,69 árið 2024.

Árið 2025 greindust 22 einstaklingar með karbapenemasa-myndandi Enterobacterales (CPE), fleiri en nokkru sinni áður á einu ári. Karbapenemasa-myndandi sýklar eru með allra ónæmustu bakteríum og geta verið því sem næst alónæmir jafnframt því að vera algengir og alvarlegir sýkingarvaldar.

Sýklalyfjanotkun og -næmi hjá dýrum

Sýklalyfjanotkun hjá dýrum er áfram lítil í alþjóðlegum samanburði. Heildarsala sýklalyfja fyrir dýr jókst þó um 21,4% milli ára. Aukningin skýrist bæði af áframhaldandi sýklalyfjameðferð vegna kýlaveikibróðurs í landeldi á bleikju og aukinni sölu sýklalyfja til annarra dýrategunda. Þá greindist búfjártengdur MÓSA í fyrsta sinn við skipulega skimun í íslenskum svínum og fannst bakterían á fjórum nátengdum svínabúum.

Framtíðin

Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi áframhaldandi vöktunar, skynsamlegrar sýklalyfjanotkunar og samstarfs heilbrigðis-, dýraheilbrigðis- og umhverfisyfirvalda. Aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn sýklalyfjaónæmi var gefin út árið 2024 og er leiðarvísir um þær aðgerðir sem mikilvægt er að grípa til hérlendis til þess að sporna við frekari útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.

Sóttvarnalæknir