Aldurseftirlit hjá fyrirtækjum sem selja áfengi á netinu
19. maí 2026
Ný úttekt sem embætti landlæknis lét framkvæma sýnir að aldurseftirliti hjá netverslunum sem selja áfengi er oft ábótavant. Aðeins í 7% tilvika var beðið um skilríki við afhendingu áfengis og í 36% tilvika var rafrænna skilríkja krafist við kaup.

Tilgangur úttektarinnar var að kanna hvernig aldurseftirliti væri háttað við kaup á áfengi í netverslunum og bera niðurstöðurnar saman við önnur Evrópulönd. Ekki hafa verið til íslensk gögn um aldurseftirlit í netverslun með áfengi, þ.e. áfengi sem ekki er keypt hjá ÁTVR. Rík hefð er hins vegar fyrir hulduheimsóknum hjá ÁTVR en nýlegt eftirlit sýndi að í um 90% tilfella var spurt um skilríki við kaup á áfengi í verslunum þeirra.
Við framkvæmd úttektarinnar var leitað til fyrirtækisins Better Business sem sérhæfir sig í hulduheimsóknum og er meðlimur í alþjóðasamtökunum MSPA (Mystery Shopping Providers Association). Fyrirtækið vinnur eftir gæðaviðmiðum samtakanna.
Þátttaka í JA PreventNCD
Embætti landlæknis tekur þátt í evrópska samstarfsverkefninu JA PreventNCD þar sem meginmarkmiðið er að innleiða árangursríkar aðgerðir til þess að koma í veg fyrir ósmitbæra sjúkdóma, eins og krabbamein, sykursýki og hjarta- og æðasjúkdóma. Helstu áhættuþættir ósmitbærra sjúkdóma eru óhollt mataræði, reykingar, áfengisneysla, hreyfingarleysi og geðheilbrigðisvandamál. Verkefnið styður aðildarríki við að innleiða árangursríkar aðgerðir og stefnur sem beinast bæði að einstaklingsbundnum og samfélagslegum áhættuþáttum. Verkefnið skoðar meðal annars regluverk, umhverfi og framkvæmd stefnu sem varðar áfengi og tóbak í þátttökulöndum. Þar á meðal eru verkþættir sem snúa að úttekt á aldurseftirliti hjá fyrirtækjum sem selja skaðleg efni.
Lög um áfengi og hlutverk ríkisins
Í áfengislögum nr. 75/1998 er kveðið skýrt á um að ríkið fari með smásölu áfengis. Slíkt fyrirkomulag er mikilvæg lýðheilsu- og forvarnaraðgerð, þar sem það takmarkar aðgengi að áfengi og dregur úr markaðsdrifinni sölu.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) leggur ríka áherslu á að stjórnvöld styrki reglur um aðgengi að áfengi, meðal annars með því að takmarka fjölda sölustaða, sölutíma og aðgengi ungs fólks og viðkvæmra hópa. Þetta er talið vera ein af hagkvæmustu og áhrifaríkustu leiðunum til að draga úr skaðlegri áfengisneyslu.
Rannsóknir sýna að aukið aðgengi að áfengi, til dæmis fleiri sölustaðir eða lengri sölutími, tengist almennt meiri neyslu og auknum áfengistengdum skaða. Takmarkanir á aðgengi geta dregið úr bæði heildarneyslu og neikvæðum afleiðingum áfengisneyslu. Frekari upplýsingar má finna í Áfengi: Engin venjuleg vara - samantekt þriðju útgáfu.
Það er því mikilvægt að standa vörð um hlutverk ríkisins í smásölu áfengis sem hluta af heildstæðri og gagnreyndri áfengisstefnu. Ef dregið er úr aðgengisstýringu, verðstýringu og aldurseftirliti þá dregur það úr virkni áhrifaríkustu forvarnaaðgerðanna hérlendis. Það mun leiða til þess að ungmenni undir aldri hafi aukið aðgengi að áfengi með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á þroska, heilsu og líðan þeirra sem þess neyta.
Frekari upplýsingar
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is