Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum - fjórum aðgerðum lokið
30. júní 2026
Nú er fjórum af tuttugu og sex aðgerðum í Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi 2025 – 2030 lokið. Hægt er að fylgjast með framgangi aðgerða í gagnvirku mælaborði á vef embættis landlæknis.

Umfjöllun um sjálfsvíg í fjölmiðlum
Tvær af þeim aðgerðum sem nú hafa verið innleiddar (aðgerðir 4.1 og 4.2) snúa að þýðingu, kynningu og fræðslu um handbókina Sjálfsvígsforvarnir: Ráðleggingar fyrir fjölmiðlafólk. Ráðleggingarnar eru aðgengilegar á vefsíðu Lífsbrúar - miðstöðvar sjálfsvígsforvarna og á vef Blaðamannafélags Íslands undir faglegt efni.
Lífsbrú hefur kynnt ráðleggingarnar fyrir fjölmiðlum og sent upplýsingar um þær á alla skráða fjölmiðla á Íslandi. Ráðleggingarnar byggja á alþjóðlegri þekkingu og gagnreyndum aðferðum um hvernig fjalla megi um sjálfsvíg af virðingu, ábyrgð og með uppbyggilegum hætti. Rannsóknir sýna að umfjöllun fjölmiðla getur haft áhrif á viðhorf almennings og hegðun. Ábyrg og vönduð umfjöllun getur stuðlað að aukinni þekkingu, dregið úr fordómum og hvatt fólk til að leita sér aðstoðar þegar á þarf að halda.
Sá hluti aðgerðanna sem snýr að kynningu á námsefninu í grunnmenntun fjölmiðla- og blaðafólks er einnig lokið. Efnið hefur verið kynnt þeim háskólum sem kenna fjölmiðlafræði og blaðamennsku, það er Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri. Skólunum hefur jafnframt verið gert aðgengilegt kennsluefni og boðið upp á fræðslu frá Lífsbrú. Framhaldsskólar sem bjóða upp á áfanga í fjölmiðlun hafa einnig fengið kynningu á efninu.
Kveikjuviðvaranir
Vert er að nefna að í íslensku ráðleggingunum eru fjórir viðaukar sem eru sérstaklega sniðnir að íslenskum aðstæðum. Þar er meðal annars fjallað um heppilegt orðalag, birtur listi yfir úrræði og dæmi um ábyrga umfjöllun um sjálfsvíg í fjölmiðlum.
Í ráðleggingunum kemur fram að ekki sé mælt með því að birta svokallaðar kveikjuviðvaranir í upphafi frétta um sjálfsvíg. Áherslan er þess í stað á vandaða, ábyrga og gagnreynda framsetningu frétta, sem skipti mestu máli. Nýjar leiðbeiningar frá Alþjóðasjálfsvígsforvarnarsamtökunum (IASP) eru í samræmi við þessa nálgun og leggja áherslu á að kveikjuviðvaranir geti ekki komið í stað ábyrgrar umfjöllunar, sjá nánar í viðauka 3, bls. 44.
Innleiðing þessara aðgerða er mikilvægt framlag til að efla sjálfsvígsforvarnir í samfélaginu og styðja við örugga og upplýsta umræðu um sjálfsvíg og geðheilsu.
Nánari upplýsingar
Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnastjóri Lífsbrúar – miðstöðvar sjálfsvígsforvarna
gudrun.j.gudlaugsdottir@landlaeknir.is
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðamaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is
Hvar er hjálp að fá?
Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Píeta samtökin, s. 552-2218, Hjálparsíma Rauða krossins s. 1717 og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar s. 1700 og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112.
Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á: Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar s. 1700 og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð s. 551-4141, og sorgarmidstod@sorgarmidstod.is, síma Píeta samtakanna 552-2218. Í neyð hringið í 112.