Fara beint í efnið

Við gefum líf - verkefnið kynnt á Vestfjörðum

4. desember 2018

„Við áttum góðan fund hér, þann þriðja í röðinni um breytt lög um líffæragjafir. Þar gefst tækifæri til að kynna málið í heilbrigðisþjónustunni en við fáum í leiðinni mikilvægar spurningar og athugasemdir.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

„Við áttum góðan fund hér, þann þriðja í röðinni um breytt lög um líffæragjafir. Þar gefst tækifæri til að kynna málið í heilbrigðisþjónustunni en við fáum í leiðinni mikilvægar spurningar og athugasemdir sem stuðla að því að bæta upplýsingamiðlunina og gera hana nákvæmari og markvissari," segir Jórlaug Heimisdóttir, verkefnisstjóri hjá embætti landlæknis.

Heilbrigðisstarfsmenn á Patreksfirði tóku þátt í fundinum með fjarfundabúnaði. Jórlaug hafði framsögu á fundi með starfsmönnum Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða í hádeginu í dag og kynnti lagabreytingu sem tekur gildi um áramótin og kveður á um að landsmenn verða þá sjálfkrafa líffæragjafa, hafi þeir ekki skráð andstöðu við að gefa líffæri sín.

Fjölmargar fyrirspurnir voru lagðar fyrir Jórlaugu og í svörum hennar kom meðal annars skýrt fram að eftir sem áður yrði fullt tillit tekið til viðhorfs þeirra sem séu andvígir því að gefa líffæri.

Þeir sem eru andvígir því að gefa líffæri geta skráð sjálfir á heilsuvera.is eða fengið aðstoð heimilislækna til að skrá þá afstöðu sína frá og með 1. janúar 2019.

Niðurstaða viðhorfskönnunar bendir eindregið til þess að landsmenn séu jákvæðir gagnvart líffæragjöfum og reynslan í heilbrigðiskerfinu bendir til slíks hins sama. Ýmsir halda að einungis fólk á „besta skeiði ævinnar" komi til álita sem líffæragjafar en svo er alls ekki. Yngsti líffæragjafinn á Íslandi var nokkurra mánaða gamalt barn en sá elsti 85 ára karlmaður. Aldurinn skiptir því ekki máli í raun!

Sjá nánar á síðu verkefnisins - Við gefum líf.