Vel sóttur fræðslufundur um líffæragjafir
24. október 2019
Mikil aðsókn var á fræðsludag fyrir heilbrigðisstarfsfólk um líffæragjafir sem var haldinn í gær. Um 150 manns sóttu fundinn sem haldinn var í Reykjavík en einnig fylgdust 60-80 starfsmenn sjúkrahússins á Akureyri með fundinum í gegnum streymi.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Landlæknir logo - Fréttamyndir](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Mikil aðsókn var á fræðsludag fyrir heilbrigðisstarfsfólk um líffæragjafir sem var haldinn í gær. Um 150 manns sóttu fundinn sem haldinn var í Reykjavík en einnig fylgdust 60-80 starfsmenn sjúkrahússins á Akureyri með fundinum í gegnum streymi. Fundurinn var haldinn af Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri, embætti landlæknis með stuðningi frá heilbrigðisráðuneytinu.
Í ár eru tíu ár liðin frá upphafi samstarfs Íslands við Sahlgrenska-háskólasjúkrahússins í Gautaborg á sviði líffæragjafa og líffæragjafaígræðslna. Líffæri úr látnum líffæragjöfum á Íslandi eru flutt til Svíþjóðar og grædd í sjúklinga á Sahlgrenska háskólasjúkrahúsinu.
Starfsfólk sjúkrahússins á Akureyri fylgdust með fundinum í gegnum streymi
Á fundinum fluttu sérfræðingar frá Líffæraígræðslumiðstöð Sahlgrenska-háskólasjúkrahússins fræðsluerindi auk íslenskra sérfræðinga og einstaklinga sem sögðu frá eigin reynslu varðandi líffæragjafir.