Fara beint í efnið

Nemendur í tóbakslausum bekkjum fá gjöf

6. apríl 2018

Allir nemendur í 7., 8. og 9. bekk grunnskóla sem taka þátt í verkefninu Tóbakslaus bekkur fá sundpoka að gjöf frá Embætti landlæknis.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Allir nemendur í 7., 8. og 9. bekk grunnskóla sem taka þátt í verkefninu Tóbakslaus bekkur fá sundpoka að gjöf frá Embætti landlæknis.

Gjöfin hefur verið send til nær 4500 nemenda í 240 bekkjum víðsvegar um landið sem hafa tekið þátt í verkefninu. Gjöfin á nú að hafa borist öllum og kemur vonandi að góðum notum.

Nýlega voru einnig dregnir út þrír bekkir sem fá sendan aukavinning og er það annar útdráttur vinninga á skólaárinu. Að þessu sinni fá nemendur vinningsbekkjanna og kennarar þeirra húfur frá 66°Norður.

Eftirtaldir bekkir duttu í lukkupottinn:

Álfhólsskóli 9. SHK
Brekkuskóli 7. FRF
Melaskóli 7. ÍHH

Þátttakendur eru minntir á lokaskil verkefna föstudaginn 27. apríl næstkomandi.

Samtals tíu bekkir sem senda inn lokaverkefni vinna til verðlauna. Upphæðin nemur 5.000 krónum fyrir hvern skráðan nemanda í bekknum og er því fé ráðstafað eins og bekkurinn sjálfur kýs að gera. 

Eingöngu er tekið við lokaverkefnum á tölvutæku formi. Æskilegt er að myndbrot séu ekki lengri en 10 mínútur. Verkefnin geta verið með ýmsu móti, t.d. veggspjöld, auglýsingar, stuttmyndir eða fræðsluefni um tóbaksvarnir.

Áréttað er að það er ekki skilyrði fyrir þátttöku í verkefninu Tóbakslaus bekkur að skila inn lokaverkefni. Eftir miðjan maí verða úrslitin kynnt.

Nánari upplýsingar: Tóbakslaus bekkur

Hægt er að skoða lokaverkefni verðlaunahafa síðasta skólaárs í frétt um úrslitin 16. maí 2017.