Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Hrina alvarlegra sýkinga hjá börnum af völdum E. coli baktería

4. júlí 2019

Á undanförnum 2–3 vikum hafa 4 börn greinst á Íslandi með alvarlega sýkingu af völdum E. Coli bakteríu (STEC).

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Á undanförnum 2–3 vikum hafa 4 börn greinst á Íslandi með alvarlega sýkingu af völdum E. Coli bakteríu (STEC). Fólk getur smitast af STEC með menguðum matvælum eða vatni, með beinni snertingu við dýr eða mengaðan úrgang dýra. Bakterían kemst þannig um munn og niður í meltingarveg og framleiðir eiturefni sem getur valdið blóðugum niðurgangi og í alvarlegum tilfellum nýrnabilun og blóðleysi (Hemolytic Uremic Syndrome).

Börnin sem sýktust búa öll á höfuðborgarsvæðinu en hafa öll líklega smitast í uppsveitum Árnessýslu eða nánar tiltekið í Bláskógabyggð en á þessari stundu er ekki ljóst hver uppspretta smitsins er. Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit Suðurlands vinna nú að því að greina uppruna sýkinganna og stöðva frekari útbreiðslu.

Matvælastofnun greindi nýlega frá tilvist sjúkdómsvaldandi baktería í kjöti á markaði á Íslandi. Þar kom fram að STEC bakteríur finnast í 30% sýna af lambakjöti og 11,5% sýna af nautgripakjöti. Auk þess geta bakteríurnar fundist í ógerilsneyddri mjólk.

Einstaklingar sem dvalist hafa undanfarnar 2–3 vikur í uppsveitum Árnessýslu (Bláskógabyggð) og veikjast með blóðugum niðurgangi eru hvattir til að leita til læknis svo ganga megi úr skugga um hvort þeir hafi sýkst af ofangreindri bakteríu.

Sóttvarnalæknir