Fara beint í efnið

Flensur og aðrar pestir – 12.-13. vika (19. mars–1. apríl) 2018

4. apríl 2018

í síðustu viku (13. viku) var inflúensan staðfest hjá 19 einstaklingum sem er mikil fækkun frá vikunum á undan.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala. Í síðustu viku (13. viku) var inflúensan staðfest hjá 19 einstaklingum sem er mikil fækkun frá vikunum á undan. Inflúensu B veiran (B/Yamagata) veldur enn flestum sýkingum, en inflúensubóluefnið hefur ekki veitt góða vörn gegn henni. Aðrir sem greindust voru með inflúensu A(H3).

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Síðustu tvær vikur hefur þeim fækkað umtalsvert sem greinst hafa með inflúensulík einkenni í heilsugæslunni og bráðamóttökum, sjá mynd 1.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensan var enn áberandi einkum í Austur-Evrópu í 11. viku (12.–18. mars), sjá inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Inflúensa B er algengasta greiningin en bæði inflúensa A(H3) og inflúensa A(H1)pdm09 hafa greinst á meginlandinu sem leitt hefur til langvarandi faraldurs, þungri sjúkdómsbyrði og umframdauða hjá þeim sem veikir eru fyrir.

Innlagnir vegna inflúensu á Landspítala. Samkvæmt upplýsingum frá sýkingavarnadeild Landspítala fækkaði umtalsvert innlögnum á Landspítala í viku 13. Mynd 2 sýnir aldursdreifingu þeirra sem lagðir voru inn á Landspítala með inflúensu frá því í 37. viku 2017.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Í 13. viku var Respiratory Syncytial veiran (RSV) staðfest hjá fimm einstaklingum sem er fækkun borið saman við vikurnar á undan eins. Í síðustu viku var human metapneumóveira (hMPV) staðfest hjá sjö einstaklingum.

Samantekt og mat á öndunarfæraveirum síðastliðnar vikur. Allar vísbendingar eru í þá átt að farið sé að draga úr inflúensufaraldrinum í ár.

Meltingarfærasýkingar. Dregið hefur úr tilkynningum um niðurgang, sjá mynd 3. Niðurgangurinn er oftast af völdum rótaveiru, oftast hjá börnum á aldrinum 1–4 ára en sjö einstaklingar greindust með staðfesta rótaveiru.

Sóttvarnalæknir