Aukavinningar dregnir út í Tóbakslaus bekkur
29. janúar 2018
Nú hafa verið dregnir út aukavinningar í verkefninu Tóbakslaus bekkur sem fer fram árlega meðal nemenda 7., 8., og 9. bekkinga á landinu.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Landlæknir logo - Fréttamyndir](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Nú hafa verið dregnir út aukavinningar í verkefninu Tóbakslaus bekkur sem fer fram árlega meðal nemenda 7., 8., og 9. bekkinga á landinu.
Að þessu sinni duttu tveir bekkir í lukkupottinn, Foldaskóli, 7 bekkur MS og Glerárskóli 8. bekkur SM. Nemendur vinningsbekkjanna og kennarar þeirra unnu húfur frá 66°Norður
Fleiri eiga möguleika á að vinna
Annar útdráttur aukavinninga verður 28. mars 2018. Þá verða fleiri bekkir dregnir út sem fá 66°N húfur í verðlaun.
Sendið okkur undirritaðan samning og reglulegar staðfestingar
Við viljum hvetja alla bekki sem ekki hafa sent inn undirritaðan samning til að gera það sem fyrst. Við minnum einnig á að nauðsynlegt er að senda fimm sinnum yfir tímabilið staðfestingarnar á að bekkurinn sé tóbakslaus.