Fara beint í efnið

Alvarlegt atvik eftir nálastungur

28. mars 2018

Embætti landlæknis barst nýlega ábending frá Landspítala um alvarlegt atvik þar sem sjúklingur með svokallað loftbrjóst hafði leitað til bráðamóttöku og gengist undir aðgerð í kjölfar áverka eftir nálastungur.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Embætti landlæknis barst nýlega ábending frá Landspítala um alvarlegt atvik þar sem sjúklingur með svokallað loftbrjóst hafði leitað til bráðamóttöku og gengist undir aðgerð í kjölfar áverka eftir nálastungur. Um var að ræða þungaða konu sem hafði farið í nálastungumeðferð í því skyni að bæta úr meðgönguógleði. Sjúklingurinn var í bráðri lífshættu.

Loftbrjóst verður þegar gat kemur á lungað og það fellur saman, en slíkt getur hindrað öndun, sérstaklega ef það gerist báðum megin. Loftbrjóst er þekkt áhætta við nálastungur á bol- og hálssvæði.

Embætti landlæknis hafa áður borist tilkynningar og ábendingar um tilvik af slíkum áverkum. Að mati landlæknis er fullt tilefni til að vara við því að leitað sé þjónustu eða meðferðar hjá ófaglærðum áhugamönnum eða öðrum sem vafi getur leikið á um að kunni vel til verka. Á þetta sérstaklega við þegar um er að ræða viðkvæma einstaklinga, þungaðar konur, börn og sjúklinga með alvarleg eða langvinn veikindi svo sem krabbamein.

Gagnsemi nálastungumeðferða er umdeild. Þótt fylgikvillar séu fremur sjaldgæfir þá geta afleiðingar þeirra verið mjög alvarlegar og í sumum tilvikum lífshættulegar. Auk loftbrjósts og ástungu í önnur viðkvæm líffæri, hafa komið upp alvarlegar sýkingar í kjölfar slíkra meðferða. Sem dæmi má nefna að nýlega lést maður í Noregi af sýkingu eftir nálastungur á hendi. Þá vöruðu dönsk yfirvöld á síðasta ári við áhættu af nálastungum eftir fjögur alvarleg tilfelli það sama ár, þar af var eitt dauðsfall.