Ábending til lækna vegna umfjöllunar um lyfjaskort
26. september 2018
Vegna umfjöllunar um lyfjaskort vill Embætti landlæknis minna lækna á að hægt er að ávísa lyfjum, sem ekki hafa markaðsleyfi á Íslandi og lyfjum sem hafa markaðsleyfi á Íslandi en eru ekki markaðssett, með undanþágulyfseðlum. Þau lyf eru oft til á lager á Íslandi og í þeim tilvikum því engin bið.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Landlæknir logo - Fréttamyndir](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Vegna umfjöllunar um lyfjaskort vill Embætti landlæknis minna lækna á að hægt er að ávísa lyfjum, sem ekki hafa markaðsleyfi á Íslandi og lyfjum sem hafa markaðsleyfi á Íslandi en eru ekki markaðssett, með undanþágulyfseðlum. Þau lyf eru oft til á lager á Íslandi og í þeim tilvikum því engin bið.
Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Lyfjastofnunar. Þessar undanþágur veitir Lyfjastofnun læknum á þeirra ábyrgð sbr. 7. gr. lyfjalaga nr. 93 frá 1994. Almennar upplýsingar um lyfjaskort má finna á vefsíðu Lyfjastofnunar.