Vinnustofa SNS um fræ- og plöntuframboð fyrir norræna skóga með breyttu loftslagi
8. september - 9. september 2026
Björgvin Noregi
Á vinnustofu sem haldin verður í tengslum við árlega ráðstefnu NordGen í Björgvin í Noregi 8.-9. september verður spurt: Hvernig tryggjum við nægt framboð af fræi og trjáplöntum fyrir norræna skóga sem standast þá áraun sem fylgir loftslagsbreytingum?
Vinnustofan liður í verkefni sem Norræna ráðherranefndin hratt af stað með því markmiði að afla upplýsinga um framboð á fræi og trjáplöntum í samhengi við væntanlegar breytingar á veðurfari á Norðurlöndunum. Markmiðið er að skilgreina hvaða trjátegundir og fræuppsprettur henti best þeim aðstæðum sem blasa við með breyttu loftslagi og greina þau úrlausnarefni sem takast þarf á við í því sambandi.
Á vinnustofunni verður farið ofan í saumana á viðfangsefninu til að skilgreina betur hvaða verk þurfi að vinna. Þátttakendur leggja sitt af mörkum til verkefnisins með því að taka þátt í að skilgreina bæði þau úrlausnarefni sem eru brýnust og hvaða þætti er mikilvægast að afla betri þekkingar um.
Hagnýtar upplýsingar, dagskrá NordGen-ráðstefnunnar og skráning
