Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Vefnámskeið um kynjajafnrétti í græna geiranum

20. maí - 21. maí 2026

Norræna skógvísindasamstarfið SNS býður upp á vefnámskeið í maí um hvernig flétta má jafnréttissjónarmið inn í kennslu og kennsluaðferðir í græna geiranum. Námskeiðið er ókeypis en fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Umsóknarfrestur er til 20. apríl.

Í tilefni af alþjóðadegi kvenna 8. mars kynnti SNS netútgáfu af námskeiði sem byggt er á handbók SNS um aðferðir til jafnréttis kynjanna í græna geiranum. Fólk sem sinnir kennslu og handleiðslu er hvatt til að taka virkan þátt í að efla jafnrétti í græna geiranum með því að flétta þessar aðferðir inn í kennslu sína og kennsluferðir. Þannig megi varða veginn fyrir komandi kynslóðir.

Takmarkaður fjöldi þátttakenda

Með námskeiðinu gefst færi á að sjá hvernig nýta má handbókina sem verkfæri í starfi og kennslu. Námskeiðið krefst nokkurra klukkustunda undirbúnings, einn kennsludagur fer fram á vefnum og í kjölfarið verða rafrænir fundir til að fylgja kennslunni eftir. Námskeiðið er hagnýtt, örvar fólk til að þróa sig áfram og hjálpar því að samþætta jafnréttissjónarmið og kennslu með markvissari hætti en áður.

Tíminn sem fer í námskeiðið er um það bil tvær klukkustundir í undirbúning, sex klukkustundir á námskeiðsdegi og fimm klukkustundir í eftirfylgni. Þátttakendur sem ljúka námskeiðinu fá staðfestingarskjal.

Námskeiðið fer eingöngu fram á vefnum og leitast verður við að haga tímasetningum með hliðsjón af því í hvaða tímabeltum þátttakendur verða.

Upplýsingar um námskeiðsdag

Hvenær: Miðvikudagur 20. maí 2026
Hvar: Á vefnum (Zoom)
Kostnaður: Ókeypis

Skráning:
Vinsamlegast sendið tölvupóst á annie.s.roos@gmail.com fyrir 20. apríl og tilgreinið nafn, starfsheiti og stofnun.

Velkomið er að hafa samband við Annie ef fólk þarf svör við spurningum eða aðstoð við að tengjast.

Hvers vænta má af námskeiðinu

  • Kynning á handbók SNS um aðferðir til jafnréttis kynjanna.

  • Verklegar æfingar þar sem handbókin er heimfærð á eigið starf og kennslu þátttakenda.

  • Samstarf og umræður milli þátttakenda.

  • Rafrænir eftirfylgnifundir og áframhaldandi stuðningur við innleiðingu haustið 2026

Leiðbeinandi

Leiðbeinandi á námskeiðinu verður dr. Annie Roos, dósent í frumkvöðlafræði við Linnaeus-háskóla í Svíþjóð og sérfræðingur í jafnréttismálum innan landbúnaðar-, skógræktar- og lífhagkerfisgeirans. Hún kom að þróun fyrstu útgáfu aðferðahandbókarinnar og býr yfir víðtækri reynslu af innleiðingu kynjasjónarmiða í mismunandi kennsluumhverfi.