Trjáfellingar og grisjun - námskeið á Hvanneyri
9. október - 11. október 2026
10:00 til 16:00

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands heldur þriggja daga bóklegt og verklegt námskeið í trjáfellingu og grisjun 9.-11. október 2026. Námskeiðið hentar vel starfsfólki sem vinnur að umhirðu trjágróðurs, skóga og opinna svæða og notar keðjusög við störf sín.
Fyrsti námskeiðsdagurinn fer fram í Bútæknihúsi Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri en tveir verklegir dagar fara að mestu leyti fram í skóglendi við Einkunnir sem er 15 km. frá Hvanneyri.
Mikil áhersla er lögð á öryggi, rétta tækni og verklega þjálfun. Tveir reyndir skógfræðingar kenna, Benjamín Davíðsson og Valdimar Reynisson. Aðeins 16 þátttakendur komast að svo tryggja megi gott svigrúm til verklegrar þjálfunar, persónulegrar leiðsagnar og eftirfylgni frá kennurum.
Nánari upplýsingar og skráning á
