Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Trjáfellingar og grisjun með keðjusög - Reykjum Ölfusi

20. janúar 2026

09:00 til 16:00

Reykir, Ölfus,

810 Hveragerði

Garðyrkjuskólinn - FSu býður upp á námskeið í trjáfellingum og meðferð keðjusagar dagana 20.-22. janúar 2026 í Garðyrkjuskólanum-FSu að Reykjum í Ölfusi. Hámarksfjöldi þátttakenda er tíu og skráningarfrestur til 13. janúar.

Námskeiðið er öllum opið. Það hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.

  • Fyrsti dagurinn er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir:

    • Fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu.

    • Leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli.

    • Val á trjám til fellingar.

    • Grisjun skóglendis, trjáþyrpinga og garða.

  • Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar:

    • Keðjusög tekin í sundur.

    • Einföld bilanaleit í söginni og hefðbundið viðhald.

    • Þrif sagar.

    • Brýning keðju.

  • Loks verður einn og hálfur verklegur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm eru beðnir að taka búnað sinn með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnaðinn lánaðan á námskeiðinu.

Kennari: Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hjá Garðyrkjuskólanum - FSu (Fjölbrautaskóla Suðurlands).

Tími: (3X)

  • þriðjudagur 20. jan. kl. 9-17.30

  • miðvikudagur 21. jan. kl. 9-17.30

  • fimmtudagur 22. jan. 9-16

Staður: Garðyrkjuskólanum á Reykjum (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.

Skráning: Í netfangið gardyrkjuskolinn@fsu.is

Skráningarfrestur er til 13. janúar.

Verð: 84.900 kr. (kennsla, hádegismatur og gögn innifalin í verði).