Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Sumardagurinn fyrsti í Garðyrkjuskólanum á Reykjum

24. apríl 2025

10:00 til 17:00

Sumardaginn fyrsta, 24. apríl, verður opið hús hjá Garðyrkjuskólanum-FSu á Reykjum í Ölfusi frá klukkan 10 til 17. Fjölmargt verður um að vera í húsum skólans, svo sem grænmetismarkaður, vöfflukaffi, námskynning, sölubásar, og fleira.

Allir eru velkomnir, ekki síst á sérstaka hátíðardagskrá sem hefst klukkan hálftvö. Þá afhendir forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, garðyrkjuverðlaunin 2025.

Hátíðardagskrá

24. apríl 2025 kl. 13:30-14:40

Fundarstjóri: Björgvin Örn Eggertsson

13.30 Setning – Guðríður Helgadóttir, staðarhaldari Reykjum

13.35 Garðyrkjuverðlaunin 2025

  • Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir

  • Hvatningarverðlaun garðyrkjunnar

  • Verknámsstaður ársins

  • Heiðursverðlaun garðyrkjunnar

13.55 Tónlistaratriði – Einar Clausen, söngvari

14.00 Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar.

  • Mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundur Ingi Kristinsson.

14.15 Tónlistaratriði – Einar Clausen, söngvari

14.20 Ávarp – Soffía Sveinsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands

14.30 Tónlistaratriði – Karlakór Hveragerðis

14.40 Slit – Björgvin Örn Eggertsson, fundarstjóri